Frjáls verslun - 01.02.2006, Page 30
30 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
14. febrúar
Skýrr ráðandi í EJS
Sagt var frá því þennan dag að
Skýrr, sem er hluti af Kögunar-
samsteypunni, hefði keypt fremur
óvænt um 58,7% hlut í EJS og
orðið þar með
ráðandi í fyrirtæk-
inu. EJS er með
þekktustu tölvu-
fyrirtækjum lands-
ins og hefur m.a.
selt hinar þekktu
Dell tölvur. Haft
var eftir Hreini
Jakobssyni, for-
stjóra Skýrr, í
Morgunblaðinu að kjarnastarf-
semi EJS hafi verið sala á vélbún-
aði sem Skýrr hafi ekki verið í.
Þessi tvö fyrirtæki gætu saman
boðið viðskiptavinum upp á heild-
arþjónustu, þ.e. í hugbúnaði, vél-
búnaði, rekstri, gagnaflutningum,
internetþjónustu o.s.frv., og
markað sér sérstöðu á markað-
inum með því.
14. febrúar
Yngvi Örn með
78 milljónir
Yngvi Örn Krist-
insson, fram-
kvæmdastjóri
verðbréfasviðs
Landsbanka
Íslands, var með
78,1 milljóna
króna í laun,
hlunnindi og
kaupauka á síðasta ári. Þetta
kom fram í tilkynningu til Kaup-
hallar Íslands.
15. febrúar
Gunnar Smári kaupir
fyrir 170 milljónir
Tilkynnt var til Kauphallar Íslands
að Gunnar Smári Egilsson, for-
stjóri Dagsbrúnar, hefði keypt
hlutabréf í Dagsbrún fyrir 170
milljónir. Um var að ræða 30,8
milljónir hluta í félaginu á geng-
inu 5,54. Í tilkynningunni kom
fram að um væri að ræða sölu
á eigin bréfum til forstjórans
samkvæmt sérstökum samningi.
Eftir kaupin á Gunnar Smári um
1,15% hlut í Dagsbrún, en hann
og aðilar honum tengdir eiga til
samans um 1,8% hlut í Dags-
brún.
15. febrúar
FL Group í drykkina
Margir urðu undrandi á kaupum
FL Group í 10,7% hlut í danska
félaginu Royal Unibrew, en
félagið er annar stærsti drykkj-
arvöruframleiðandi á Norður-
löndum. Innan samstæðunnar
eru fjórir danskir, tveir lithá-
enskir, tveir pólskir og tveir lett-
neskir drykkjarvöruframleiðendur.
Á meðal vörumerkja eru Albani,
Faxe, Ceres, Maribo og Thor í
Danmörku. Starfsmenn Royal
Unibrew eru 2.300 og flytur
félagið út framleiðslu sína til um
65 landa.
16. febrúar
Sensa fær viður-
kenningu frá Cisco
Systems
Skemmtileg frétt um að tölvu-
fyrirtæki Sensa hefði fengið við-
urkenningu Cisco Systems fyrir
bestan árangur samstarfsaðila í
ánægjukönnun meðal viðskipta-
vina annað árið í röð. Cisco
Systems gerir slíkar kannanir
árlega meðal þeirra fyrirtækja
sem nýta sér búnað og tækni
frá fyrirtækinu. Þetta er í þriðja
skipti sem Sensa hlýtur viður-
kenningu frá Cisco Systems.
Árið 2005 var fyrirtækið útnefnt
Commercial Partner of the Year í
Norður-Evrópu.
17. febrúar
FL Group kaupir í
Bang og Olufsen
Enn og aftur kemur FL Group
á óvart í fjárfestingum sínum. Í
þetta skiptið keypti það 8,2%
hlut í danska félaginu Bang og
Olufsen og var markaðsvirði hlut-
arins um 7,5 milljarðar króna.
Bang og Olufsen þróar, framleiðir
og selur hljóm- og myndflutn-
ingslausnir. Félagið velti um 38
milljörðum króna árið 2004. FL
Group bætti við hlut sinn í byrjun
mars og á núna 10,1% í Bang og
Olufsen.
20. febrúar
Magnús kaupir
Gísla Jónsson
Magnús Kristinsson, útgerð-
armaður í Eyjum, sem nýlega
keypti Pál Samúelsson hf. og
bílaleiguna Hertz á Íslandi, lætur
ekki deigan síga við að kaupa fyr-
irtæki. Sagt var frá því að hann
hefði keypt Gísla Jónsson ehf.
Fyrirtækið er með ýmis þekkt
vörumerki er tengjast afþreyingu
og mótorsporti á Íslandi. Má
þar helst nefna Ski-doo snjó-
sleða, BRP fjórhjól og sæþotur,
Camp-let tjaldvagna og kerrur
og Starcraft fellihýsi og pallhús.
Með kaupum Magnúsar á P.
Samúelssyni (Toyota-umboðinu)
nýverið fylgdi einnig umboð fyrir
Yamaha öku- og mótortæki.
D A G B Ó K I N
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON o.fl.
Yngvi Örn
Kristinsson.
Hreinn
Jakobsson,
forstjóri
Skýrr.
Gunnar Smári Egilsson.
Magnús
Kristinsson.
Valgerður Hrund Skúladóttir,
framkvæmdastjóri Sensa.