Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 32
32 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
Starfsfólk Sparisjóðsins
– við erum í sjöunda himni!
1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005
%
Ánægja
viðskiptavina
70
65
75
80
Landsbanki
Íslandsbanki
KB banki
Sparisjóðurinn
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar hagnaður!
Að íslensku ánægjuvoginni standa;
Samtök iðnaðarins, Stjórnvísi og Gallup.
Samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni eru viðskiptavinir Sparisjóðsins þeir ánægðustu af
viðskiptavinum bankakerfisins sjöunda árið í röð. Við lögum okkur að þörfum einstaklinga og
einbeitum okkur að því að veita persónulega og góða þjónustu. Við erum í sjöunda himni og
þökkum viðskiptavinum okkar kærlega fyrir!
27. febrúar
Nýsir kaupir tvö
fasteignafélög
í Danmörku
Dótturfélag Nýsis hf., Nysir DK,
hefur keypt allt hlutafé í tveimur
fasteignafélögum í Danmörku.
Félögin eru Jehl ApS Tietgens
Have og Jehl Aps Atriumhuset.
Kaupverðið er trúnaðarmál milli
kaupanda og seljanda.
27. febrúar
Danskar fasteignir
heilla
Íslendingar hafa mikla trú á
dönskum fasteignum. Þennan
dag var ekki bara sagt frá
kaupum Nýsis á fasteignafé-
lögum í Danmörku heldur einnig
kaupum Samsonar Partners á
hlut í danska fasteignafélaginu
Sjælsø Gruppen.
Það var gert þannig að aðal-
eigandi Sjælsø, eignarhaldsfé-
lagið Rønje Holding, stofnaði
félagið Nord Holding ásamt
Samson og það félag keypti svo
aftur hlut Rønje Holding í Sjælsø
Gruppen. Svolítið flókið - en
þannig eru viðskipti stundum.
28. febrúar
„Óbeinn virkur
eignarhlutur“
Sagt var frá því þennan dag að
Fjármálaeftirlitið hefði komist
að þeirri niðurstöðu að stofnast
hefði „óbeinn virkur eignarhlutur“
tiltekinna stofnfjáreigenda í Spari-
sjóði Hafnarfjarðar á seinasta
ári (SPH). FME tilkynnti stjórn
sparisjóðsins þetta 20. febrúar
sl. og jafnframt að eftirlitið hefði
tekið ákvörðun um að tilteknir
stofnfjáreigendur mættu ekki
fara sameiginlega með meira en
5% atkvæðisréttar.
Annars vegar var um að ræða
fimm einstaklinga sem ekki
máttu fara saman með meira en
5% í sparisjóðnum og hins vegar
tvö fyrirtæki sem sett voru sömu
mörk. Sjá ennfremur fréttaskýr-
ingu FV á bls. 46.
Það urðu miklar sviptingar í
stjórn Straums-Burðaráss fjárfest-
ingabanka eftir aðalfund félags-
ins sem haldinn var föstudaginn
3. mars. Einn stærsti hluthafinn
í félaginu, Magnús Kristinsson,
útgerðarmaður í Eyjum, sem
hefur verið varaformaður stjórn-
arinnar, náði ekki kjöri sem
varaformaður. Þess í stað var
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, kosinn varaformaður stjórn-
arinnar og að sögn Magnúsar
var Eggert kosinn sem fulltrúi
„litla mannsins“ í stjórnina.
Frásögn Morgunblaðsins af
fundinum og viðtal blaðsins við
Magnús Kristinsson vakti að
vonum mikla athygli. Við skulum
glugga í frétt Morgunblaðsins
með beinni tilvitnun:
„Magnús sagði að þegar fund-
urinn átti að hefjast hefði komið
í ljós að einn aðalmaður af fimm,
Páll Magnússon, var fjarverandi.
Hann segir að Björgólfur Thor
Björgólfsson, formaður stjórnar,
hafi greinilega verið búinn að
ákveða fyrir fundinn hver yrði
varamaður Páls og greint frá
því að Þórunn Guðmundsdóttir
lögmaður, sem er einn af vara-
mönnum í stjórn, sæti fundinn
í stað Páls. Þetta hafi komið
Magnúsi í opna skjöldu.
„Allt í einu er Þórunn sest
við stjórnarborðið en við gerum
enga athugasemd við það. Egg-
ert Magnússon tekur síðan til
máls og tilkynnir að hann sé öld-
ungur fundarins og eigi að setja
fundinn, sem hann og gerði.
Fyrsta mál á dagskrá var að
hann stakk upp á Björgólfi Thor
sem formanni og
voru allir samþykkir
því,“ segir Magnús.
Hann segir að
þessu næst hafi Þór-
unn tekið til máls
á fundinum, nánast
tilbúin með skrifaða
ræðu um að henni þætti eðlilegt
að fulltrúi litla mannsins, eins og
hún orðaði það, yrði kosinn vara-
formaður stjórnar Straums-Burða-
ráss fjárfestingabanka. Sá hafi
verið Eggert Magnússon, sem
var síðan kosinn varaformaður
gegn atkvæði Magnúsar.
„Og óska ég Eggerti Magnús-
syni, fulltrúa litla mannsins, inni-
lega til hamingju með að vera
orðinn varaformaður Straums-
Burðaráss fjárfestingabanka.
Vonast ég til þess að hann ræki
það embætti vel og
dyggilega,“ segir
Magnús.
„Ég sit þarna
klumsa sem fyrrver-
andi varaformaður
og greiði atkvæði á
móti þessu en einn
sat hjá, þrír studdu og svo var
þessu bara lokið. Það eru ekki
nema fimm eða sex mánuðir
síðan þessir menn tókust í
hendur við sameininguna um að
vinna saman að uppbyggingu og
ágæti þessa félags.“
Það er óhætt að segja að
margur maðurinn hafi pirrast
út af léttvægari byltingu en
þessari. Það breytti þó ekki því
að Magnús bætti við hlut sinn
í Straumi-Burðarási fáeinum
dögum eftir fundinn.
Danskar fasteignir heilla Íslendinga.
4. mars
EGGERT FULLTRÚI „LITLA MANNSINS“
Eggert Magnússon,
formaður KSÍ.