Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 38
38 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
D A G B Ó K I N
Viðskiptavinir Landsbankans hafa getað keypt og selt hlutabréf
í Danmörku, Svíþjóð og Bandaríkjunum í gegnum E*TRADE. Nú
bætist Noregur við. Landsbankinn er eini bankinn sem býður upp
á bein viðskipti með hlutabréf á öllum Norðurlöndunum og í
Bandaríkjunum.
Mikið líf hefur verið á norska markaðnum síðustu misseri og
margir spennandi fjárfestingarmöguleikar í boði enda er olíuverð
hátt, en það hefur jafnan góð áhrif á norska markaðnum. Margt
bendir því til þess að tækifæri séu til staðar á Noregsmarkaði um
þessar mundir.
Með skráningu á E*TRADE í gegnum Landsbankann býðst
möguleiki að nýta sér þau tækifæri beint og milliliðalaust og fá
jafnframt aðgang að haldgóðum markaðsupplýsingum.
E*TRADE er einfalt í notkun og allt viðmót er á íslensku. Því er
ekkert til fyrirstöðu að tryggja sér aðgang að mörkuðum Norður-
landanna og Bandaríkjanna með því að skrá sig á E*TRADE og
byrja að nýta tækifærin.
Ert þú á E*TRADE?
Kynntu þér málið á landsbanki.is eða hringdu síma 410 4000.
Velkominn Noregur!
Á síðasta ári hækkaði Det Norske
Oljeselskap (DNO) um 853% sem
var mesta hækkunin á markaðnum.
Markaðsverðmæti félaga í Noregi
er 170.266 milljónir evra.
Fjöldi fyrirtækja í norsku
kauphöllinni árið 2005
var 219 og þar af voru
46 ný félög.
Nú hefur E*TRADE opnað fyrir
vi›skipti í kauphöllinni í Osló
25 félög mynda úrvalsvísitöluna
í norsku kauphöllinni.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
31
83
3
0
3/
20
06
Jóhannessonar og fjölskyldu
hans.
Þá þótti hinn bandaríski bíla-
sali, Ivan G. Motta, heldur ekki
trúverðugt vitni þar sem hann
hefði haft mikil samskipti við
Jón Gerald og þeir m.a. ferðast
saman til landsins og borið gögn
sín saman.
Þau sönnunargögn, sem
ákæruvaldið lagði fram í málinu,
þóttu ekki vega upp ótrúverðug-
leika vitnanna.
17. mars
Helgi Magnússon
fékk 91% atkvæða
Helgi Magnússon, fyrrverandi for-
stjóri Hörpu, fékk 91% greiddra
atkvæða í kosningu um formann
Samtaka iðnaðarins, en kjörið fór
fram á Iðnþingi. Vilmundur Jósefs-
son gaf ekki kost á sér áfram til
formennsku. Þorsteinn Víglunds-
son, Anna María Jónsdóttir og
Ingvar Kristinsson voru kjörin til
stjórnarsetu næstu tvö árin. Fyrir
í stjórn Samtaka iðnaðarins eru
Aðalheiður Héðinsdóttir, Hörður
Arnarson, Loftur Árnason og Sig-
urður Bragi Guðmundsson.
17. mars
Klippt á krosstengsl
Exista og KB
Sigurður Einarsson, starfandi
stjórnarformaður Kaupþings
banka, sagði á aðalfundi bank-
ans að stefnt væri að því að
hlutafé Exista yrði skráð í kaup-
höll á þessu ári og að slitið yrði
á krosseignatengslin á milli
Kaupþings og Exista. Bankinn
á 19,2% eignarhlut í Exista (en
Exista á 21% hlut í Kaupþingi)
og yrði þetta framkvæmt þannig
að bankinn losaði sig við hlutinn
þannig að hluthöfum bankans
yrðu greiddar aukaarðgreiðslur
í formi hluta í Exista. Upplýsti
Sigurður að Kaupþing hefði haft
frumkvæði að viðræðum við
aðra hluthafa Exista um þetta
mál. Bræðurnir Lýður og Ágúst
Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings banka, á aðalfundinum.