Frjáls verslun - 01.02.2006, Page 68
68 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
Ellert hefur mikinn áhuga á hestum og á
um þrjátíu hesta ásamt fjölskyldu sinni.
Trilluútgerð og ígulkera-
hrogn
Eftir að Ellert hætti í
lögreglunni flutti hann
ásamt fjölskyldu sinni í
Stykkishólm, þaðan sem
kona hans er ættuð, og
hóf trilluútgerð ásamt
fleirum. Hann átti hlut í
bát sem hét Mar en eftir
nokkurra ára basl, að eigin sögn, seldi hann
sinn hlut í bátnum og fór að vinna við lax-
eldi í Hraunsfirði sem var í eigu sænskra
auðmanna. „Þetta var virkilega skemmti-
legur tími á sjónum en því miður lifir
maður ekki á skemmtilegheitum einum
saman.“ Ellert hafi lært köfun eftir að hann
kom á Stykkishólm og starfaði við hana
samhliða útgerðinni.
Haustið 1992 stofnaði Ellert ásamt
félaga sínum, Herði Harðarsyni, fyrirtækið
Íslensk ígulker sem sérhæfði sig í vinnslu
á ígulkerahrognum sem
þeir köfuðu eftir. „Við
byrjuðum í Stykkis-
hólmi en fluttum okkur
svo til Njarðvíkur til að
vera nær Keflavíkurflug-
velli. Fyrirtækið gekk
ágætlega og við vorum
með um níutíu manns
á launaskrá þegar mest
var. Við seldum mikið af hrognum til Jap-
ans en síðan kom verðfall og við hættum
einfaldlega árið 1995.“ Um tíma gerðu þeir
tilraun með að rækta ígulker en Ellert segir
að það hafi verið þeim fjárhagslega ofviða
að halda því áfram.
Fiskvinnsla í Taílandi og Kína Eftir ævin-
týrið í kringum ígulkerahrognin fór Ell-
Ellert hefur mikinn áhuga á hestum og á um þrjátíu hesta ásamt fjölskyldu sinni.
Starf Ellerts í dag felst í
því að halda utan um starf-
semi fyrirtækisins í Asíu,
bæði hvað varðar viðskipti
með fisk og hráefnisöflun
fyrir vinnsluna.
Malt út á Cheerios
Eiríkur Beck, vinur Ellerts, segir að
hann sé afskaplega skemmtilegur
maður, eigi til alls konar uppátæki en
þoli illa ef menn sýna honum yfirgang
eða óheiðarleika. „Elli er eini maðurinn
sem ég þekki sem fær sér maltöl út á
Cheerios. Hann er traustari en stál og
það geta allir keppt við Ella svo lengi
sem það er gert heiðarlega, en guð
hjálpi þeim sem svindlar. Það er mun
betra að vera með honum í liði en á
móti. Að mínu mati er hann ljúfur og
góður maður og það er stutt í hláturinn,
en það borgar sig aldrei að gera neitt
á hlut hans. Hann er líka þannig að
annaðhvort líkar honum vel við fólk eða
ekki og hann er ekkert að eyða tíma í
þá sem honum líkar ekki við.“