Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 70
KYNNING70 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
Maritech ehf. rekur upphaf sitt til TölvuMynda (nú TM Software) en félagið varð til við sameiningu viðskiptalausnadeildar TMS við norskt félag. TM
Software, sem hefur verið kjölfestufjárfestir í félaginu, keypti
nýlega 95% í því og mun eignast það að fullu á næstu vikum.
Maritech býður Navision-viðskiptalausnir og íslenskar sér-
lausnir fyrir fyrirtæki og sveitarfélög á Íslandi. Á alþjóðlegum
vettvangi býður Maritech hugbúnaðarlausn fyrir sjávarútveg
undir vörumerkinu WiseFish, en WiseFish byggir einnig á
Microsoft Navision-grunni.
Maritech er með eigin starfsemi í fimm löndum, Íslandi,
Noregi, Bretlandi, Norður-Ameríku og Chile. Alls starfa um 160
manns hjá fyrirtækinu, flestir á Íslandi eða 63.
Kaup TM Software styrkir Maritech
Framkvæmdastjóri Maritech er Jón R. Kristjánsson. Hann
segir kaup TM Software á félaginu styrkja það, sérstaklega á
Íslandi: „Við getum nú boðið breiðari vörur og þjónustu í sam-
vinnu við aðrar rekstrareiningar TM Software. Sem stærri heild
erum við einnig sterkari í sókn á erlenda markaði.“
Jón tekur fram að erlend starfsemi beggja fyrirtækjanna
byggi á sömu hugmyndafræði, að einbeita sér að sérhæfðum
markhópi þar sem byggt er á góðum árangri í hugbúnaðar-
þróun á heimamarkaði.
Vinsæl viðskiptalausn og öflug vöruþróun
Samkvæmt nýrri úttekt Viðskiptablaðsins er Microsoft
Business Solution - Navision vinsælasti viðskiptahugbúnað-
urinn meðal íslenskra fyrirtækja og um þriðjungur þeirra nota
hugbúnaðinn. Á þessu ári mun nafn lausnarinnar breytast í
Dynamics Nav og um leið breytir Microsoft nafni annarra við-
skiptalausna í sama nafn, þ.e. Dynamics. Þetta er skref á leið
viðskiptalausna Microsofts inn í sameiginlega framtíð. Innan
fárra ára mun ný kynslóð viðskiptalausna líta dagsins ljós
undir þessu nýja nafni.
„Framundan eru miklar breytingar í þróun viðskiptalausna
og samþættingar þeirra við aðrar lausnir. Samþætting við-
skiptalausna við Outlook, SharePoint, CRM og OLAP lausnir
munu gerbreyta verkferlum í framtíðinni. Af þeim sökum veðja
flestir á samstarf við Microsoft eða aðra stóra alþjóðlega hug-
búnaðarframleiðendur varðandi viðskiptalausnir.“
Maritech stundar öfluga vöruþróun. Markmið Maritech er
að þróa hugbúnaðarlausnir til að uppfylla sérhæfðar þarfir
ákveðinna markhópa, s.s. sjávarútvegs og sveitarfélaga, ásamt
séríslenskum lausnum fyrir íslenskar þarfir. WiseFish er dæmi
um árangursríka þróun fyrir ákveðinn markhóp. Maritech býður
mjög fjölbreyttar lausnir fyrir íslenskan markað, s.s. launakerfi,
tollakerfi, beintengingar við íslenska banka, skuldabréfalausnir,
verkbókhaldslausnir, hluthafakerfi og margt fleira.
Áhugavert
fyrirtæki
í alþjóðlegu
umhverfi
TEXTI: HILMAR KARLSSON • MYNDIR: GEIR ÓLAFSSON ofl.
Maritech ehf.
Jón Kristjánsson, framkvæmdastjóri Maritech, segir viðskiptavini koma
úr flestum geirum atvinnulífsins á Íslandi.