Frjáls verslun - 01.02.2006, Síða 81
F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6 81
of lengi á hverjum degi - við Íslendingar
köllum það stúf - og hún getur fyrir vikið
ekki sinnt sjúklingum sínum alla mánudaga
ársins þótt sjúklingarnir séu hjálparþurfi þá
sem aðra daga. Henni hefur komið til hugar
að safna stúfunum upp í aukasumarfrí en
úr því að sumarfríið var sjö vikur fyrir, þá
endist sumarið vart í allt þetta frí í ár og
ekki batnar ástandið þótt vandanum verði
ýtt yfir á næsta ár.
Martröð vinnualkans
Fyrir svokallaða vinnualka er allt árið ein
samfelld martröð. Þá langar til að vinna og
vinna og vinna meira. En þá kemur sjeff-
inn og segir: Ef þú kemur þér ekki heim
á stundinni safnar þú upp svo miklu fríi
að þú kemst alls ekkert í vinnuna! Viltu
kannski það?
Þá fer vinnualkinn heim og lætur sér
leiðast. Eða að hann fer að vinna á laun.
Hann situr eftir í vinnunni þegar búið er
að slökkva öll ljós og hamast við. Stimplar
sig út en fer inn aftur; sest við. Ef engin yfir-
vinna mælist þarf hann ekki heldur að taka
hana út sem frí.
Eða að vinnualkinn fer að vinna
einn heima og verður að andfélagslegri
drullupumpu. Hann tekur með sér verk-
efnin heim og gerir þau kannski tvisvar
til að fá svalað vinnulöngun sinni. Hann
verður að vandamáli í þjóðfélaginu og nýtir
ekki frítímann sinn til að eyða laununum
sínum og dregur þannig úr veltu í verslun
og þjónustu. Það verður að senda hann í
meðferð og kenna honum að segja sann-
færandi við sjálfan sig: Hvíldu þig, hvíld
er góð!
Harkan sex
Og nú á að bæta gráu ofan á svart. Það á
enn að stytta vinnuvikuna. Hætta að hafa
hana 37,5 tíma og taka upp 30 tíma vinnu-
viku. Fróðir menn segja að 30 tíma vinnu-
vika verði orðin almenn regla á norrænum
vinnumarkaði eftir tíu ár. Íslendingar sitja
hér eftir því þeir hafa enn ekki náð að stytta
raunverulega vinnuviku niður í 40 tíma.
Þeir eru enn í 50 tíma vinnuvikunni.
Með styttingu magnast vandinn enn.
Frítíminn verður óbærilegur - að maður tali
ekki um vinnutímann. Þegar vinnutíminn
er kominn niður í sex tíma á dag er ekki
lengur tími til að gera neitt annað en að
vinna. Smá droll í vinnunni leiðir til þess að
sjeffinn kemur öskureiður og heimtar meiri
afköst. Ekki ein mínúta af þessum stutta
vinnudegi má fara til spillis.
Þá verður ekki lengur hægt að hanga á
skrifborðsbrúninni hjá Nonna í næsta bás
og tala um fótbolta. Og ef þú ert að byggja
getur þú ekki farið út að redda efni í BYKÓ
klukkan ellefu og komið svo aftur í vinnuna
klukkan tvö - og kallað fjarveruna matar-
hlé. Það verða engin matarhlé.
Stóri bróðir sér þig
Allir verða að keppast við vinnuna allan dag-
inn. Þá verður ekki lengur hægt að halda
huggulegu sambandi við vini og kunningja
í vinnunni. Þá þýðir ekki lengur að láta
sem maður sé að skrifa á fullu ef maður
er í raun og veru bara að skiptast á MSN-
skeytum við Gunnu frænku úti í bæ um
síðasta partí.
Það verður að fylgjast með fólki í vinnu-
tímanum og sjá til þess að allir haldi sig við
vinnu allan vinnudaginn frá átta að morgni
til tvö á daginn og sjá til þess að verkum sé
lokið fyrir þann tíma. Blaðamenn geta ekki
skilað af sér hálfskrifuðum greinum og sál-
fræðingar geta ekki hætt að rekja garnirnar
úr fólki í miðri sálarkreppu æskunnar og
sagt að vinnudagurinn sé liðinn. Það verður
að ljúka öllum verkum á skemmri tíma en
áður.
N O R E G S P I S T I L L G Í S L A
Hinn kunni blaðamaður, Gísli Kristjánsson í Noregi, fer hér á algerum kostum
um styttingu vinnuvikunnar, stúfana í vinnunni, of langt sumarfrí, öll vinnusvikin,
tímaþjófana og reykingapásurnar. Þessi grein er hrein snilld. Skyldulesning!
MARTRÖÐ VINNUALKANS
Tímaþjófur. Vinnualkar segjast verða mjög
oft fyrir barðinu á tímaþjófum og nái því ekki
að klára verk sín innan dagsins.
Fyrir svokallaða vinnualka er allt
árið ein samfelld martröð. Þá
langar til að vinna og vinna og
vinna meira. En þá kemur sjeffinn
heima og segir: Ef þú kemur þér
ekki heim á stundinni safnar þú
upp svo miklu fríi að þú kemst
alls ekkert í vinnuna!