Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 90
90 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
SUMARHÚS
KYNNING
Sumarhúsaeigendur í Grímsnesi, Biskupstungum og
Borgarfirði, í Bifröst og í Svartagili, geta nú keypt heitt vatn
í bústaðinn hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Orkuveitan gerir tilboð í heildarlausn. OR sér þá um
hönnun og lagningu húskerfis og sumarhúsaeigandi getur
verið áhyggjulaus um alla framkvæmdina og látið fagmenn
sjá um allt verkið. Þess er gætt að jarðrask verði sem allra
minnst og eins vel er gengið frá landi og lóð og kostur er.
Allar nánari upplýsingar eru inni á vefnum www.or.is
undir Jaðarveitur.
Einnig er hægt að fá nánari upplýsingar
í þjónustuveri Orkuveitunnar í síma 516 6100.
HEITT VATN Í SUMARHÚSIÐ
www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
RK
1
55
1
03
/2
00
6
Á undanförnum árum hefur Orkuveita Reykjavíkur rekið hita-veitur á svæðum þar sem frístundahús eru í meirihluti. Mik-ill áhugi og væntingar hafa skapast meðal húseigenda sem
finna vel fyrir mikilvægi þess að traust og öflugt fyrirtæki annist
þessa þjónustu þar sem hún er nú talin ein af frumforsendum fyrir
góðri nýtingu frístundahúsanna.
„Orkuveita Reykjavíkur hefur kappkostað að kynna húseig-
endum hvernig best er staðið að lögnum og búnaði til að nýta ork-
una sem best og njóta þeirra gæða sem í heitu vatni
felast,“ segir Ingibjörg Valdimarsdóttir, deildarstjóri
Markaðsdeildar OR.
Réttur búnaður skiptir máli Til að full gæði náist
úr heita vatninu ber að huga vel að þeim búnaði
sem valinn er. Æskilegt er að hvert hús hafi lokað
ofnakerfi með frostlegi. Þetta er gert til að varna
frostskemmdum ef svo óheppilega vill til að veitan stöðvist eða bili
í miklum kuldum. Þannig er kerfið tengt heita vatninu um varma-
skipti. Í tengibúnaði er gert ráð fyrir lítilli dælu sem sér um að við-
halda hringrás á frostleginum og tryggir varmaflutning um húsið.
Að auki er mikilvægt að vera með vandaðan slaufuloka í tengigrind-
inni. Slaufuloki vinnur þannig að hann hleypir öllu vatninu í þá átt
sem lægstur er þrýstingurinn svo t.d. allt vatnið sem skammtað er
myndi fara í sturtuna á meðan hún er í notkun og ekkert í varma-
skiptinn. Þetta kemur ekki að sök hvað varðar hitann í húsinu, því
varminn er nægjanlegur til að halda því heitu í nokkurn tíma.
Ef heitur pottur er við bústaðinn er oft gerð
krafa um að hægt sé að fylla hann á skömmum
tíma. Í gamni er oft nefnt að ekki megi taka lengri
tíma að fylla pottinn en það tekur að koma fjöl-
skyldunni fyrir í húsinu, þ.e. matföngum og fötum,
og drekka einn öl. Ýmsar lausnir eru mögulegar til
að stytta þann tíma sem tekur að fylla pottinn, til
dæmis að kaupa stærri skammt af vatni. Þetta hafa stéttarfélög og
félög um frístundahúsið valið að gera þar sem hver gestur vill fylla
heita pottinn af hreinu vatni fyrir sig og af þeim sökum er verið
að kaupa 5 til 7 lítra á mínútu fyrir þessi hús. Séu frístundahúsin í
einkaeign geta eigendur valið aðrar leiðir. Ein er sú leið að leggja
affallið frá varmaskiptinum um heita pottinn og hafa hann með því
móti alltaf fullan af vatni. Þegar komið er að húsinu er potturinn
fullur af um 30 til 35°C heitu vatni og þá tekur aðeins stuttan tíma
að skerpa á vatninu svo að það verði um 40°C, sem er sá hiti sem
er æskilegur í heitum pottum.
Til að tryggja gæði vatnsins er nauðsynlegt að vera með hreinsi-
búnað og eru söluaðilar tilbúnir að ráðleggja húseigendum í þeim
efnum. Orkuveitan vill beina því til húseigenda, sem velja að vera
með heita potta fulla af vatni þegar enginn er við húsin, að gæta
þess að lok sé tryggilega fest og læst yfir pottinn.
Auknar kröfur „Heitt vatn í frístundahúsum hefur aukið gæði
dvalarinnar í húsunum verulega. Einnig hefur heimsóknardögum
fjölgað umtalsvert að sögn þeirra sem spurðir hafa verið. Verðmæti
húsanna hefur líka aukist þar sem hitun þeirra allt árið fer vel með
þau,“ segir Ingibjörg og bætir við að auknar kröfur séu gerðar til
seljenda lóða undir frístundahús og nú séu gerðar kröfur um ekki
aðeins heitt og kalt vatn heldur líka nettengingu í hvert hús.
Orkuveita Reykja-
víkur hefur aukið
þjónustu við eigendur
frístundahúsa á undan-
förnum árum.
Heitt vatn og
nettenging
ORKUVEITAN:
Ingibjörg Valdimarsdóttir, deildarstjóri Markaðsdeildar OR.
Heitasta ósk
frístundahúsaeigandans:
Á köldum vetrardögum er heita vatnið bráðnauðsynlegt.