Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 92
92 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
SUMARHÚS
KYNNING
Á síðasta ári lagði Rarik rafmagn í liðlega 600 sumarhús í skipulögðum hverfum á landinu. Þar af voru um 380 á Suðurlandi og 180 á Vesturlandi. Langflest þeirra voru í
skipulögðum sumarhúsakjörnum,“ segir Örlygur Jónasson, fram-
kvæmdastjóri veitusviðs RARIK.
Örlygur segir að rafvæðing sumarhúsa hafi ekki byrjað fyrir
alvöru fyrr en í kringum 1980 og þá þurftu umsækjendur að greiða
fyrir tengingu samkvæmt tilfallandi kostnaði við verkið. Upp úr
miðjum níunda áratugnum varð til föst verðskrá sem gilti fyrir teng-
ingar í skipulögðum hverfum.
Mælakassi ekki lengur í tengigjaldi Þegar óskað er eftir tengingu
sumarhúss við dreifikerfi RARIK er greitt tengigjald. Minnsta heim-
taugin kostar í dag um 300 þúsund krónur. Til þess að tengigjaldið
falli undir auglýsta gjaldskrá þarf að uppfylla nokkur skilyrði er
varða fjarlægð frá dreifikerfinu, þéttleika og fjölda umsækjenda
í upphafi. Einstaka heimtaugar eru afgreiddar samkvæmt tilboði
hverju sinni og fer kostnaður þá eftir aðstæðum í hverju tilviki
(sjá vefsíðu RARIK - tengigjaldskrá). Hingað til hefur svokallaður
mælakassi, sem ætlaður er fyrir raforkumælinn, verið innifalinn í
heimtaugargjaldinu og hefur umsækjandi fengið kassann afhentan
og rafverktakinn sér síðan um að setja hann upp og tengja. Að
fenginni reynslu hefur verið ákveðið að framvegis verði það hlut-
verk eiganda og rafverktaka að leggja til fullnægjandi kassa fyrir
raforkumælinn en um leið verður tekið tillit til þess í tengigjaldinu,
að sögn Örlygs.
Þar til á síðasta ári fól minnsta
heimtaug í sér afl sem svaraði til 5
kílówatta (kW). Þetta afl hefur nú
verið aukið í 10 kW. Þeir sem keyptu
heimtaug fyrir 2005 geta fengið hana
stækkaða í 10 kW sér að kostnaðar-
lausu, en sækja verður skriflega um
og einnig þarf rafvertaki hússins að gera viðeigandi ráðstafanir í
rafmagnstöflu hússins.
Ekki hægt að sameinast um heimtaug Fyrir nokkru birtist grein
í einu dagblaðanna um að hægt væri að spara sér tengigjald með
því að nokkrir bústaðir sameinuðust um heimtaug. Örlygur leggur
á það áherslu að samkvæmt tæknilegum tengiskilmálum raforku-
dreifingar sé þetta óheimilt. „Meginreglan er sú að sækja verður
sérstaklega um heimtaug fyrir hvern bústað og hvert hús fyrir sig,“
segir Örlygur Jónasson að lokum.
Aflminnstu heim-
taugar nú 10
kílówött en voru
áður helmingi
minni.
Rafmagn í
bústaðinn
Örlygur Jónasson, framkvæmdastjóri veitusviðs RARIK.
RARIK: