Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 100
100 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
SUMARHÚS
Gestahús eða hrotukot
Þægileg gestahús rísa nú víða við sumarbústaði. Sumir kalla
þessi gestahús hrotukot og segja í gamansömum tón að þar fái
amma og afi að sofa vegna þess þau hrjóti svo hátt. Kannski
er það ekki ástæðan heldur öllu fremur að það er býsna
notalegt fyrir gesti að geta brugðið sér út í „eigið hús“
og sofið þar af nóttina eða fengið sér blund á miðjum
degi þótt aðrir vilji vaka.
Í gestahúsunum láta menn nægja að vera með
þægilegt rúm og klósett. Í besta falli er fullbúið baðherbergi í
gestahúsinu sé það nógu stórt. Sé fjölskyldan stór getur verið
gott að gera ráð fyrir því að í gestahúsinu sé rými ekki aðeins
fyrir tvo heldur jafnvel litla fjölskyldu, foreldra og eitt eða tvö
börn og þá getur verið gott að vera með lítinn ísskáp og jafnvel
rafmagnshellu í húsinu svo gestirnir geti sjálfir fengið sér hress-
ingu þegar þá langar til.
Víða er hægt að fá keypt fullsmíðuð gestahús sem einfalt er
að koma fyrir við sumarbústaðinn en aðrir og laghentari sumar-
bústaðaeigendur smíða bara gestahúsið sjálfir, kannski með
aðstoð þeirra sem þar munu fá að gista í framtíðinni.
Bryggjudraumar
Lítil flotbryggja er góður kostur fyrir þá sem elska vatn.
Stutt er í vatn á mörgum sumarbústaðasvæðum á landinu og
margir hafa tækifæri til að stunda annaðhvort veiðar í sjó eða
vatni, eða einhvers konar vatnasport. Báturinn er lítið vanda-
mál, því hægt að fá sæmilegar plastjullur frá tíuþúsundkalli í
Rúmfatalagernum og fleiri stöðum, en draumafleyin, yfirbyggðir
húsbátar með öllum hugsanlegum græjum, kosta aftur tugmillj-
ónir hjá alvöru bátasmiðum. Allir sem vilja ættu því að komast
á flot og þeir sem vilja aðeins leika sér frá landi geta keypt fjar-
stýrða rafmagnsbáta eða litlar tréskútur til að leika listir með
úti á vatninu.
En hvort sem báturinn er stór eða lítill þarf bryggju.
Bryggjan ein og sér gefur möguleika á að njóta vatnsins,
jafnvel þótt enginn sé báturinn. Sumum er alveg nóg að sitja á
bryggjusporðinum við að dorga eða dingla fótunum í vatnið og
aðrir geta allt eins hugsað sér að sitja þar tyggjandi langt strá
við að leysa lífsgátuna.
Það væsir ekki um þann
sem hér fær að gista.
Flotbryggjur verða sífellt vinsælli við vötn og tjarnir því þeim
er hægt koma fyrir nánast hvar sem er og kippa þeim á land
yfir veturinn eða þegar þær eru ekki í notkun. Þær má kaupa
tilbúnar eða gera úr þykku einangrunarplasti og timbri, en fest-
ingarnar verður að miða við aðstæður í landi á hverjum stað.
Þar sem ekki gætir sjávarfalla er einfalt að koma fyrir staura-
festingum við bakka eða að bora fyrir keðju í stóran stein.