Ægir - 01.03.2007, Síða 63
63
skýr,“ segir hann. Nefnir hann
einnig að margar einingar, t.
d. í Frakklandi, hafi um langt
skeið verið í heldur döprum
rekstri, „en sem betur fer má
á móti benda á að aðrar ein-
ingar hafa skilað ágætum ár-
angri og eru í fínum farvegi,“
segir hann. Á liðnu ári brettu
menn upp ermar og hristu
verulega upp í rekstrinum,
„og það kom skýrt fram í af-
komu félagsins, við höfum
þurft að afskrifa verulega fjár-
muni undanfarin misseri og
einnig höfum við gripið til
þess ráðs að loka verksmiðj-
um.“
Björgólfur segir félagið
hreinlega ekki hafa verið að
stefna í góða átt, en þróunin
sé upp á við nú, þannig hafi
félagið á liðnu ári skilað meiri
framlegð en árið á undan,
umtalsvert raunar eða um
100% hærri framlegð milli ára.
„Vissulega er félagið mjög
skuldsett og það þarf miklar
tekjur til að ná endum saman,
en við tókum reksturinn vel í
gegn á liðnu ári, færðum til
betri vegar það sem okkur
þótti betur mega fara á mörg-
um sviðum, bættum sam-
keyrsluna verulega, þannig
að nú teljum við okkur vera
að komast á rétta braut.“
Björgólfur segir nýtt tíma-
bil nú hafið í rekstri félagsins
í kjölfar breytts eignarhalds.
Það hafi í raun brotið blað í
sögu sinni með því að fjár-
festa í verulegum mæli í fyr-
irtækjum víða um heim sem
framleiða ferskt og kælt sjáv-
arfang til viðbótar landvinn-
ingum fyrir frystar vörur. „Sú
kauphrina sem hófst á árinu
2003 og stóð yfir í um tvö ár
gerir það að verkum að fé-
lagið hefur breyst mjög mik-
ið, það er nú orðið allt annað
en gamla SH var á sínum
tíma.“
Skarpari fókus
Hann segir að um mitt síðast-
liðið ár hafi sú ákvörðun ver-
ið tekin varðandi rekstur
Coldwater UK að einbeita sér
að framleiðslu tilbúinna rétta,
frosnum og ferskum. Hefð-
bundinni brauðaðri fram-
leiðslu verði hætt þar og hún
flutt í verksmiðjur félagsins í
Þýskalandi og Frakklandi.
„Við þessa aðgerð verða verk-
smiðjur okkar í Frakklandi og
Þýskalandi fullnýttar sem er
afar mikilvægt í þessum
rekstri,“ segir hann og bætir
við að með ákvörðuninni telji
forsvarsmenn félagsins það
komið með skýrari stefnu en
áður, „við höfum unnið að
þessari stefnumótun um skeið
og að okkar mati hefur stefn-
an orðið skýrari, m.a. mun
skarpari fókus á það sem við
erum að gera í Evrópu.“
Höfum burði til að gera góða
hluti
Björgólfur segir að vitanlega
geti verið erfitt að hafa yfirsýn
yfir svo stórt félag sem Ice-
landic er, í dreifðum rekstri
og með starfsemi svo að segja
um allan heim. Slíkt geti boð-
ið hættunni heim, menn orð-
ið værukærir og talið að félög
af þessu tagi reki sig sjálf.
„Í grunninn erum við með
gott félag sem hefur alla burði
til að gera gríðarlega góða
hluti, en það skiptir auðvitað
miklu máli að hafa tíma til að
vinna með þau tækifæri sem
S A L A S J Á V A R A F U R Ð A
Yfir 20 ára reynsla af kæli- og frystikerfum
Hönnun • Ráðgjöf • Sala • Uppsetningar • Viðgerðir
Frystivélar • Kælivélar • Plötufrystar • Lausfrystar • Ísvélar
Vatnskælibúnaður • Sjókælibúnaður • Frysti- og kæliklefar
Frystiklefahurðir • Dælukútar • Safnkútar • Eimsvalar • Uppgufarar
Kælimiðilsdælur • Vatnsdælur • Kælimiðilslokar • Kælimiðlar
Viðarhöfði 6 - 110 Reykjavík - Sími 577 1444 - Fax 577 1445
Þjónusta allan sólarhringinn
Við leggjum sífellt meira upp úr því að útbúa í
okkar verksmiðjum tilbúna, kælda og ferska rétti
sem fólk getur á skömmum tíma eldað heima hjá
sér. Við reynum að bjóða upp á allt sem til þarf í
sama pakkanum, fisk, grænmeti og það sem við á.