Ægir - 01.03.2007, Page 64
64
bjóðast og eins að hafa nægt
handbært fjármagn. Við mun-
um halda óbreyttri stefnu, þá
stefnu sem við höfum markað
og unnið eftir á liðnum miss-
erum. Félagið mun í æ minna
mæli verða fisksölufyrirtæki,
það hefur tekið þeim breyt-
ingum að vera framleiðslufyr-
irtæki, með fisk í grunninn í
framleiðslunni, og bróðurpart-
ur okkar tekna kemur af slíkri
starfsemi í dag, eða um 70%,“
segir Björgólfur.
Hann nefnir að íslenskt
hráefni, fiskur af Íslandsmið-
um sem hlutfall af því hráefni
sem félagið nýtir til vinnslu í
sínum verksmiðjum, hafi
minnkað verulega. Hann sé
þó áfram mjög mikilvægur
varðandi vinnslu í ákveðnum
einingum félagsins, einkum
Spáni og Frakklandi og að
hluta til í Bretlandi og Banda-
ríkjunum, þó þar komi við
sögu staða íslensku krónunn-
ar gagnvart Bandaríkjadollar
sem geri öðrum kleift að
bjóða betur.
Reyndi á innviðina
„Við höfum gert verulegar
breytingar á félaginu á und-
anförnu ári. Miklar breytingar
hafa orðið í stjórnendateym-
inu víða. Allar aðgerðir hafa
miðað að því að halda fyr-
irtækinu á beinu brautinni,“
segir Björgólfur. Meðal að-
gerða má nefna lokun sölu-
skrifstofu félagsins í Þýska-
landi, breytingar á stjórnend-
um hjá Coldwater UK og
Frakklandi, lokun tveggja
skrifstofa í Frakklandi, lokun
verksmiðju í Bandaríkjunum
og síðan nefnd umskipti í
framleiðslu hjá Coldwater UK.
Erfiðasti þátturinn í rekstri
hvers fyrirtækis, segir Björg-
ólfur vera starfsmannamálin,
hinn mannlega þátt. „Það er
alltaf sárt þegar leiðir skilja,
það er afar sárt fyrir þann
sem fyrir uppsögn verður, en
því miður er stundum bara
ekki um neitt annað að ræða.
Að mínu viti verður að fara
mjög varlega þegar fólk á í
hlut, það þarf að hugsa hlut-
ina vel, taka ákvarðandir að
vandlega íhuguðu máli.“
Björgólfur segir alveg ljóst að
mjög hafi reynt á innviði fyr-
irtækisins þegar skipt var um
stjórnendur og sú hætta sé
alltaf fyrir hendi að félög geti
lent í hremmingum þegar
mikil uppskipti verða í stjórn-
endateyminu, „það er vand-
ratað í þessum efnum en ég
held að okkur hafi bærilega
tekist að halda sjó og við er-
um þegar farin að sjá nokk-
urn árangur af þeim breyting-
um sem við settum í gang.“
Afar hátt fiskverð
Fiskverð er mjög hátt um
þessar mundir og hefur farið
hækkandi allt síðastliðið ár.
Björgólfur telur að verðið á
ýmsum fisktegundum sé nú
farið að nálgast ákveðin
hættumörk. „Þegar það gerist
finnur fólk sér annan valkost
og það höfum við séð í
nokkrum mæli í ákveðnum
tilvikum. Þróunin getur orðið
í þá átt að þorskur og ýsa
verði að lúxusvöru, en ódýr-
ari fiskur, eldisfiskur eins og
til dæmis tilapia, annar hvítur
fiskur og lax, hafa komið
sterkar inn á markaðinn og
þann fisk kaupir fólk í stað
dýrari vöru. Sala getur að
sjálfsögðu hrunið ef verðið
verður of hátt, fólk horfir til
þess hvað matvaran kostar.
Reynslan er sú á mörkuðum
að eftirspurn minnkar þegar
verðið er of hátt eins og stað-
an er núna til dæmis. Þegar
það gerist er oft erfitt að snúa
þeirri þróun við og það tekur
tíma. Mér finnst það liggja í
loftinu að á ákveðnum mörk-
uðum þyki okkar viðskipta-
vinum verðið orðið ansi hátt,
eiginlega alltof hátt, sem get-
ur haft afleiðingar í för með
sér.“ segir Björgólfur en telur
engu að síður að heilt yfir sé
bjart yfir íslenskum sjávarút-
vegi. Í verksmiðjuframleiðsl-
unni notar Icelandic mikið al-
askaufsa og hefur verðið á
honum farið hækkandi allt
síðastliðið ár sem hefur gert
reksturinn erfiðan þar sem
hráefnishlutfall er hátt í fram-
leiðslunni. „Verðið hefur
hækkað mikið á síðasta ári en
við vonum að það hafi náð
toppi núna, hvað sem verður.
Það gerir okkur erfitt fyrir í
þessum rekstri þegar verð
hækkar stöðugt, afurðirnar
eru seldar fram í tímann og
erfitt að koma slíkum verð-
hækkunum út í verðlagið.
Þorskurinn okkar getur auð-
vitað endað sem lúxusvara og
verðlögð sem slík. Þörfum
markaðarins heilt yfir væri
síðan uppfyllt með eldisfiski.“
Viljum uppfylla þarfir 21.
aldar fólks
Að færa framleiðsluna æ nær
diski neytandans er að sögn
forstjóra Icelandic sú stefna
sem fyrirtækið hefur að leið-
arljósi, framleiðsla sem skilar
félaginu mestum virðisauka.
„Við leggjum sífellt meira upp
úr því að útbúa í okkar verk-
smiðjum tilbúna, kælda og
ferska rétti sem fólk getur á
skömmum tíma eldað heima
hjá sér. Við reynum að bjóða
upp á allt sem til þarf í sama
pakkanum, fisk, grænmeti og
það sem við á. Það er krafan
í dag, lífsstíll 21. aldarinnar ef
svo má segja og við kapp-
kostum að uppfylla þessar
þarfir. Það hefur því verið
stefnan hjá okkur að þróa
okkur meira í þessa átt, að
búa til sem allra mestu verð-
mæti úr okkar afurðum og
geta boðið okkar viðskipta-
vinum það sem þeir vilja fá,
góðan, hollan og ferskan mat,
sem lítið þarf við að hafa,
þægindin í fyrirrúmi og sann-
gjarnt verð. Það teljum við
vera okkar hlutverk,“ segir
Björgólfur.
„Íslenskur fiskur er og
verður í miklum metum hjá
neytendum víða erlendis og
það verður áfram verkefni
Icelandic að þjónusta hann
hér eftir sem hingað til. Mark-
aðskerfi félagsins er sterkt og
verður nýtt til sóknar fyrir ís-
lenskan fisk víðs vegar um
heim“ segir Björgólfur að lok-
um.
Viðtal: Margrét Þóra Þórsdóttir.
S A L A S J Á V A R A F U R Ð A
Við höfum gert
verulegar breyting-
ar á félaginu á und-
anförnu ári. Miklar
breytingar hafa
orðið í stjórnenda-
teyminu víða. Allar
aðgerðir hafa
miðað að því að
halda fyrirtækinu á
beinu brautinni.
Björgólfur Jóhannsson. Íslenskur fiskur er og verður í miklum metum hjá neytendum víða erlendis og það verður áfram verk-
efni Icelandic að þjónusta hann hér eftir sem hingað til.