Ægir - 01.03.2007, Page 78
78
vera alfarið í eigu Iceland
Iberia velti um 25 milljónum
evra á síðasta ári. Samanlögð
velta beggja fyrirtækjanna var
hins vegar um 100 milljónir
evra á síðasta ári þegar salan
fór í um 20 þúsund tonn af
sjávarafurðum.
Léttsaltaði frysti fiskurinn
stærsta breytingin
Hjörleifur segir að þótt starf-
semi Iceland Iberia hafi tekið
miklum breytingum í gegnum
tíðina hafi stóra breytingin í
sölunni hins vegar orðið þeg-
ar byrjað var að bjóða léttsalt-
aðan frystan þorsk inn á Evr-
ópumarkað. Þegar Evrópu-
sambandið setti 20% toll á
hefðbundin saltfiskflök fóru
menn að leita leiða til að
komast inn á markaðinn með
saltaðan fisk án þess að þurfa
að greiða þennan toll. Þá
fundu menn út að með því
að senda fiskinn frystan og
léttsaltaðan félli hann undir
bókun 6 og flokkaðist þar
með í 0% flokk en ekki 20%.
Hjörleifur segir að sú þróun-
arvinna sem fór fram á þess-
um árum hafi sýnt vel hvað
það skiptir miklu að vera í
góðu samstarfi við birgjana
heima. „Það voru þeir hjá
Hjálmi á Flateyri, sem í dag
heitir Kambur, sem voru
frumkvöðlar í að þróa þessa
afurð, en einnig höfum við
verið í miklu samstarfi við
Fiskiðjuna á Sauðárkróki sem
í dag eru okkar stærsti birgi í
léttsöltuðum frystum fiski,“
segir Hjörleifur. Hann bætir
við að fyrst hafi verið reynt
að koma henni á framfæri eft-
ir hefðbundnum saltfiskleið-
um en það hefði lítið gengið.
„Það var eins og menn lentu
á ákveðnum vegg sem helg-
ast kannski að því að þeir sáu
þetta sem ákveðna ógnun við
saltfiskinn. Salan komst þess
vegna ekki almennilega á
skrið fyrr en við snérum okk-
ur að fyrirtækjum sem selja
frystar vörur og buðum þeim
þetta sem nýja afurð sem væri
tilbúin til neyslu.“
Fimm saltfiskneytendur hverfa
með hverri ömmu
Hjörleifur telur að léttsaltaði
fiskurinn hafi náð að end-
urheimta nokkuð af þeim
markaði sem hefðbundinn
saltfiskur hafði tapað vegna
þess hve hann var orðinn
dýr. Hann segir að breyttur
lífsstíll og meiri hraði hafi
einnig haft sitt að segja, því
færri hafi þann tíma sem þarf
til að útvatna hefðbundinn
saltfisk og matreiða hann. Þá
hafi aukin atvinnuþátttaka
kvenna án efa líka haft sitt að
segja. „Hér áður fyrr byrjuðu
spænskar húsmæður daginn
á því að koma karlinum í
vinnuna og börnunum í skól-
ann áður en þær fóru út á
markað og keyptu í matinn.
Þá gafst góður tími til þess
m.a. að skipuleggja saltfisk-
kaupin en það hefur breyst.
Því er stundum haldið fram
að með hverri spænskri
ömmu sem deyr hverfi fimm
neytendur hefðbundins salt-
fisks af markaðinum.“ Hjör-
leifur bætir því við að vegna
eiginleika vatnsins á Spáni sé
erfitt að geyma útvatnaðan
saltfisk lengur en í nokkrar
S A L A S J Á V A R A F U R Ð A
Höfuðstöðvar Icelandic Iberia eru í þessu húsi sem er í nýlegu viðskiptahverfi í ná-
grenni Barcelonaflugvallar.
Það sem byrjaði sem tveggja manna fyrirtæki fyrir rúmum 10 árum er 117 manna
fyrirtæki í dag. Hjörleifur Ásgeirsson ásamt nokkrum samstarfsmanna sinna á
skrifstofunni í Barcelona en þar starfa nú um 30 manns.
aðal- og hjálparvélar í miklu
úrvali, ásamt öllu tilheyrandi.
Hafið hiklaust samband.
M I T S U B I S H I
Stórási 4 • 210 Garðabæ • Sími: 567 2800 • 567 2806
Netfang: mdvelar@mdvelar.is • www.mdvelar.is