Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 6

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 6
92 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR legu skoðun, að drykkjuskapur sé í senn hættuleg og illkynjuð tegund af brjálsemi, og ekki sýningarvara fyrir almenning. Hitt orkar meir tvífnælis, hvort tukthúsið sé réttur geymslustaður fyllirafta. Ölæði er sjúkdómur og slys, nema hvorttveggja sé, og það virðist ekki fremur ástæða til að setja mann, sem þjá- ist af áfengiseitrun, i tukthús en mann, sem fengið hefur flog á götunni eða orðið fyrir bílslysi. Drukkinn maður ér ekki glæpa- maður, heldur sjúkur á likama og sál, og krefst meðferðar sam- kvæmt þvi. Fangaklefinn og svartholið eru vistarverur, sem sam- ræmast hvorki i .einu né neinu hugmyndum nútimans um með- ferð óðra manna. Það hefði verið myndarlegra, að um leið og hert var á eftirliti með aumingjum af þessu tagi, hefðu verið stofnaðar sérstakar deildir við ríkissjúkrahús vor, Landsspítal- ann eða geðveikrahælið, helzt báða, til þess að líkna mönnum með áfengiseitrun, i samræmi við það, hvernig öðrum sjúkling- um er hjúkrað, sem hafa snöggsýkzt á almannafæri eða orðið fyrir slysi. Það vantar lagafyrirmæli, í líkingu við lög um berkla- varnir, sem geri ofdrykkjumönnum að skyldu að lifa einangr- aðir frá fólki á þar til gerðum hælum, unz þeir hafa verið iæknaðir og mega teljast hættulausir sjálfum sér og umhverfi sinu, en tækifærisfylliröftum að vera á spítala undir læknis- hendi, ineðan æðið er á þeim, þar sem dælt sé upp úr þeim, þeir haðaðir, gefin meðöl við deliríum o. s. frv. Það er enginn efi á því, að lögboðin áfengis-„aflúsun“ af þessu tagi mundi mæl- ast hið bezta fyrir meðal aðstandenda fylliraftanna, og fyrir unga tækifærisfyllirafta af báðum kynjum mundi slík „aflúsun“ vera ólíku jákvæðara uppeldismeðal en tukthúsið. H. K. L. * TÍMARITIÐ kostar kapps um að flytja ritgerðir og hugvekjur þekktra menntamanna og áhrifamanna í landinu um áhugamál þeirra, og það jafnt fyrir því, þótt þessi innlegg í málin séu ekki ævinlega í samræmi við skoðanir stjórnarinnar i heild. Stjórnin samanstendur af mönnum, sem hafa ýmisleg sjónar- mið, ekki aðeins í þjóðfélagsmálum, heldur taka einnig ólíka afstöðu til ýmissa andlegra efna. Hitt er okkur metnaðarmál, að umræðuefni séu rædd á breiðum grundvelli, þó þannig, að allar þær skoðanir, sem fram koma, séu í lýðræðislegum anda, séu þrungnar einlægum menningaráhuga og styðji málstað al- þýðu í landinu. Við hirðum minna, þótt í smærri atriðum sker- ist í odda um sjónarmið einstakra höfunda tímaritsins, ef ekki er í aðalatriðum hvikað frá þessum grundvelli. Þetta hefti flyt- ur t. d. greinar eftir menn með jafn ólik sjónarmið og Gunnar Gunnarsson, Kristinn E. Andrésson og Vilmund Jónsson.

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.