Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Page 15
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 101 einbeita öllum kröftum okkar að því að styrkja innri mátt þjóðfélagsins, treysta sem bezt öll félagsleg sam- tök, skapa samheldna þjóð, sem lier sjálfsvirðingu í brjósti, hefur skilning á því sögulega blutverki, sem - bíður hennar í dag, tekur á sig ábyrgð frammi fyrir komandi kynslóðum, hugsar ekki í hugtökum líðandi stundar heldur í hugtökum sögunnar, leggur fram líf sitt og starf í þjónustu hamingjusamari framtíðar óbor- inna kynslóða á íslandi. Hver einstaklingur á íslandi, verkamaður, bóndi, sjómaður, menntamaður, verður á þessum tíma að liefja lif sitt og starf í hærra veldi, gefa því félagslegt og sögulegt innihald, verður að ætla sér ný og stækkuð verkefni, temja sjálfan sig til félags- lyndis, til stærri fórna fvrir samtök sín, stéttarleg, fag- leg, menningarleg, sem innri máttur þjóðfélagsins bygg- ist fvrst og fremst á. Við verðum öll í félagi og hver einstakur að miða allt okkar líf við það að standast þá raun, sem nú ber að böndum, og eflast við hana bæði sem þjóð og einstaklingar. Augu framtíðarinnar hvíla á allri athöfn okkar. Nú er sú stund komin, að íslendingar verða að gera sér ljóst í alvöru, hvernig ástatt er í þjóðfélagi þeirra, verða að meta að nýju hver sína stjórnmálaafstöðu og þjóðfélagslegu ábyrgð. Þeir geta ekki lengur flúið undan sjálfum sér og varpað ábvrgðinni liver á ann- an. Samheldni þjóðarinnar, veit hver maður, er enginn veruleiki. Þjóðin stendur hvorki sem ein heild út á við, né í innanlandsmálum. Það er ekki liægt með neinum lygavef að breiða yfir stéttaandstæðurnar í landinu. Það er opinber staðreynd, að fámenn klíka gróðabralls- manna hefur sölsað undir sig mest ráð í þjóðfélag- inu, einokar að miklu leyti stærsta atvinnurekstur lands- manna, afurðasölu, utanríkisverzlun og fjárstofnanir. Þessi hagsmunaklíka hefur í mörg ár beitt alþýðustétt- irnar, sérstaklega verklýðsstéttina, fullum fjandskap og

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.