Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 18

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 18
104 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR veldin hefðu ekki getað ráðið við. Hún er aðeins rök- rétt framhald þeirrar stjórnmálastefnu, sem liratt þjóð- unum út í siðasta stríð. Hún er rökrétt afleiðing þess að láta fjárglæframennina, er reka styrjaldir sem arðhær- asta gróðafvrirtæki, ná þeim völdum í þjóðfélaginu, að þeir geti fyrirskipað stjórnmálastefnu ríkjanna. En sorg- legastur er sá þátturinn í aðdraganda hennar, þeg'ar sjálfir óheillamennirnir hafa verið hylltir sem bjarg- vættir friðarins. Islenzka þjóðin liefði vissulega margt að læra af ör- lögum annarra þjóða. Hún er engin undantekning í því efni, að hafa látið blekkja sig til fagnaðarláta eða skyn- semislausra æsinga, allt eftir því, á hvaða strengi valda- menn þjóðfélagsins hafa viljað leika í það skiptið. Hún hefur látið þylja yfir sér mikla og ljóta reyfara um land- ráðastarfsemi „ættjarðarlausra“ fslendinga. Ef til vill væri henni samt hollt að átta sig betur á því, hvort per- sónurnar í þeim reyfurum eru látnar ganga undir rétl- um nöfnum, og' læra af sögu annarra þjóða, hvar i flokki hina „ættjarðarlausu“ er venjulegast að finna. Það væri jafnvel ekki úr vegi að krefja sjálfa ríkis- stjórn íslands til sagna um það, hvort hún hafi haldið vörð á réttum stöðum, eða hvaða tilraunir hún liafi gert til þess að hindra orsakir síðustu atburða, eða með hversu miklum manndómi liún liafi haldið uppi rétti og virðingu íslands. En það, sem ennþá meiru varðar, úr því sem komið er: Hvað verður gert í framtiðinni? Hvað verður gert til að liindra það, að réttur og liags- munir þjóðarinnar .verði ekki að óþörfu bornir fyrir liorð? Hvað verður gert til þess að koma í veg fyrir það, að braskararnir noti sér framvegis hæði styrjöld- ina og liernámið til gróða fyrir sjálfa sig, en þá um leið til tjóns fyrir sjálfstæði og velmegun þjóðarinn- ar? Það er full ástæða til tortryggni. Ríkisstjórn þessa lands hefur verið auðsveipari að hlita vilja fjárvalds- ins heldur en vilja almennings í landinu. Hún hefur

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.