Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 24
110
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
fjandskap. Samt viljum við enga einangrun, kjósum
ekkert frekar en vinsamlega sambúð við allar þjóðir.
Við treystum einmitt á blómgun íslenzks þjóðlifs í sam-
búð okkar við heiminn. Það er styrjöldin, sem hefur
svift okkur þeirri sambúð. íslenzk alþýða verður engu
að síður að vera trú sínum alþjóðlegu félagslegu hug-
sjónum. Það er ekki alþýða landanna, sem ber sök á
þessu striði, það eru ekki þjóðirnar, sem rísa í fjand-
skap hver gegn annarri, lieldur etja þeim saman til
manndrápa og iiermdarverka nokkrir hópar fjárglæfra-
manna, sem stolið hafa sér valdi yfir þjóðunum. Alþýð-
an liatar styrjaldir, þjóðirnar vilja lifa i friði hver við
aðra. En vilji þjóðanna mun sigra þetta stríð sem önnur.
Aftur mun rísa öld friðar og þjóðfrelsis yfir blóði drifna
jörð. Á rústum sinna lirundu borga og hugmynda, held-
ur mannkynið áfram að reisa aðrar nýjar og fegurri.
Þá tökum við að nýju, sem sterkari og reyndari þjóð,
npp vinsamlega sambúð við hamingjusamari heim.
Steinn Steinarr:
Malbik.
Undir hundruðum járnaSra hæla
dreymdi mig drauminn um þig,
sem gengur eitt haustkvöld
í hljóSum trega
dúnléttum sporum
hinn dimmleita stig,
dúnléttum sporum veg allra vega
og veizt aS ég elska þig.