Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Page 33

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Page 33
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 119 þörfu í neinu blómi til þess eins að njóta ilmsins og sól- skinsins og þaðan af síður að fara að veita hunangið, sem þær safna, gestum og gangandi, sem á leið þeirra verða. Þetta eru skáldin, sem samferðamennirnir undrast, að skuli miðla þeim svo litlu af hugsunum sínum og hug- kvæmdum, vera jafnóskáldleg i liáttum sínum og tali, en um leið svo afkastamikil og regluhundin i starfi sínu, að það er eins og þau „dragi meira en drottinn gefur.“ Jóhann Sigurjónsson var af öðru sauðahúsi. Skáldgáfa hans beindist samkvæmt eðli hans ekki eingöngu að því að semja bækur, jafnvel ekki fyrst og fremst að því, held- ur að lífinu sjálfu. Það var ein af fjarstæðunum í fari hans, að liann var skáldlegri í umgengni sinni við menn en aðrir rithöfundar, af því að hæfileikar lians og hneigðir voru svo fjarri því, að vera einskorðaðar við ritstörf. Mér finnst oft einkennilegt að hugsa til þess, að hann skyldi nokkurn tíma geta setið í einrúmi við skrifhorð og legið yfir því að setja svarta stafi á pappír. Eg veit, að haim gerði þetta og gerði það vel. En honum mundi hafa verið skapi nær að þurfa aldrei að yrkja um lífið, heldur að geta gert sitt eigið lif og allra þeirra, sem hann náði til, að skáldskap, list og æfintýri. Mér liggur við að lialda, að hefði Jóhann verið stórrikur maður, eins og hann langaði til að vera, hefði hann kunnað að neyta auðlegðar sinnar á svo furðulegan og marghreytilegan hátt, að hann hefði engan tíma haft til þess að yrkja neitt annað. En nú var Jóhann, þegar hann réð af að verða rithöfundur, ekki nema fátækur, íslenzkur námsmaður í Kaupmanna- höfn. Hann fann það í sjálfum sér, að hann gat orðið mikið skáld. Hann valdi sér þá braut og kaus sér sjálf- rátt þá grein skáldskaparins, sem hann vissi, að var væn- legust til skjóts frama og mikils auðs, ef nógu vel tækist. Ihsen hafði orðið miljónaeigandi á leikritum sínum, og hvers vegna skyldi Jóhann ekki geta orðið það líka? Var önnur leið greiðfærari fyrir hann eins og á stóð? Honum skjátlaðist að vísu ekki með hæfileikana. En honum

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.