Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 39

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 39
Sigurður Þórarinsson: Listgildi kvikmynda. Það mun hafa verið að áliðnum vetri 1937, að kvik- myndahúsið „Skandia“ i Stokkhólmi hafði frumsýn- ingu á sænskri kvikmynd, er hét „Mötunevtið Paradís“. Daginn eftir frumsýninguna birtu öll helztu hlöð borg- arinnar einróma skammir um þessa kvikmynd. Hún var talin pilsnermynd af lélegasta og smekklausasta tæi, en pilsnermyndir kalla Svíar gamanmyndir, hverra fyndni er einkum fólgin í þvi, að leikendur kasta rjóma- tertum hver í annars andlit, karlmenn villast inn í lcvennabaðklefa, bófunum skrikar fótur á bananahýðum o. s. frv. Oft höfðu sænskar kvikmyndir verið víttar harð- lega af sænskum gagnrýnendum, en í þetta skipti kast- aði tólfunum. Nokkrum dögum síðar var boðað til mik- ils fundar í tónlistahöllinni i Stokkhólmi. Fundarboð- endur voru sænskir rithöfundar, listdómarar og aðrir andans pótintátar þar í landi. Fundurinn lýsti yfir and- styggð sinni á „paradísar“myndinni og öðrum sænskum kvikmyndum af sama tæi og ræddi ýmsa möguleika til þess að hæta sænska kvikmyndaframleiðslu. Daginn eft- ir hvarf „paradísar“-myndin úr Skandia og var eigi sýnd í Stokkhólmi eftir það. Svo bar það til í sumar sem leið, að mér varð litið á kvikmyndaauglýsingar Morgunblaðsins einn morgun. Þar var þá auglýst kvikmyndin „Mötuneytið Paradis“, ein af þessum „bráðskemmtilegu, vinsælu, sænsku gam- anmyndum“, — orðalagið man ég ekki alveg, en það

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.