Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 49

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 49
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 135 nokkru leyti gildir hið sama um hljómlist. Um kvik- myndalistina sem slíka hef ég áður rætt. Landið okk- ar er einangrað og afskekkt. Mj'nd margra af umheim- inum skapast nær eingöngu af kvikmyndunum. Það er því hrýnni nauðsyn heima en víða annars staðar að vanda til þeirra kvikmynda, sem sýndar eru. Hér ætti og að vera nokkuð- hægt um vik. Siðustu árin hefur framleiðsla góðra kvikmynda í veröldinni verið það stór, að vorkunnarlaust ætti að vera að sýna einungis góðar kvikmyndir heima. En því miður fer fjarri því, að þetta sé gert. Sízt ber því að neita, að stundum eru sýndar afbragðsmyndir, en varla mun þó ofsagt, að yfir helmingur allra þeirra kvikmynda, sem sýndar eru lieima, séu lakari en í meðallagi, og sumar fyrir neð- an allar hellur. Þetta er algjörlega óviðunandi. Með réttu liafa mörg ljót orð verið sögð um hina gömlu dönsku einokun á matvælum til landsins og þá skemmdu fæðu, er við urðum stundum að þola. En er okkur iiollari hálfgerð einokun á sumum tegundum andlegr- ar fæðu, og eigum við að gera okkur að góðu, að okk- ur sé boðið upp á slíka fæðu lélega, ef hægt er að útvega betri. Nei, ónei. Hér her stjórn fræðslumálanna að taka í taumana og fylgja ekki þeirri kæruleysis- stefnu, sem okkur íslendingum er svo töm. Hér hafa og blöðin stórt hlutverk að vinna. Þeirra er að gagn- rýna vægðarlaust lélegar kvikmyndir, en lofa þær, sem lofsverðar eru. En fyrst og fremst her þeim að reyna að hæta smekk fólksins um kvikmyndir, kenna því að skilja kvikmyndalistina og njóta hennar. Takist þetta, líður ekki á löngu, þar til almenningur setur sjálfur fram hina sjálfsögðu kröfu: Betri kvikmyndir!

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.