Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Síða 56
142
TÍMARIT MALS OG MEN'NINGAR
ingsmenn mínir að henni eru þeir, liv. 9. landkjörinn þing-
maður (Árni Jónsson) og hv. þingmaður Barðstrendinga
(Bergur Jónsson), en mér er skylt að geta þess, að á
greinargerð minni fyrir henni bera þeir að sjálfsögðu
enga ábyrgð.
Fer ef til vill eins vel á því, að ég lesi breytingartillöguna
sjálfur, ef hv. forseti vill gefa mér það til leyfis. Hún er
svohljóðandi:
1. Tillögugreinin orðist svo:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta fara
fram athugun á því, livernig hið íslenzka lýðræði fái
bezt fest sig i sessi og varizt jafnt áróðri sem undir-
róðri ofbeldisflokkanna og annarra andstæðinga lýð-
ræðisskipulagsins, með sérstöku tilliti til þess, að ein-
stökum mönnum, stofnunum, félögum eða flokkum
lialdist ekki uppi að nota sér réttindi lýðræðisins til að
grafa undan þvi og siðan tortíma því, en jafnframt með
sem fyllstu tillili til þess, að lýðræðið beiti jafnan þeim
aðferðum sér til varnar, er sem hezt fái samrýmzt anda
þess og því, að ekki leiði til þess, að það verði sér sjálfu
að falli. Athugunum þessum verði lokið fyrir næsta Al-
þingi og svo frá þeim gengið, að þær geti orðið undir-
staða löggjafar um þessi efni, ef tiltækilegt þykir. 1
sambandi við þetta láli rikisstjórnin endurskoða ákvæði
íslenzkrar löggjafar varðandi landráð og leggi niður-
stöður sínar fyrir næsta Alþingi.
2. Fyrirsögn tillögunnar orðist svo:
Tillaga til þingsályktunar um undirbúning löggjafar
og annarra ráðstafana til verndar lýðræðinu og öryggi
ríkisins.
Tillagan var siðan endanlega samþykkt i þvi formi, seni hér
fer á eftir:
1. Tillgr. orðist svo:
Alþingi ályktar að lýsa því yfir, að það væntir þess, að ríkis-
stjórnin og önnur stjórnarvöld hafi vakandi auga á þjóðhættu-