Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 67

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Side 67
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 153 „hagi og réttindi kvenna“. Var það einnig í fyrsta sinn, að nokk- ur kona áræddi slikt hér á landi. Frá æsku hafði hún fundið sárt hinn mikla mismun, er gerð- ur var á uppeldi drengsins og stúlkunnar, drengnum opnuðust ótal leiðir til menntunar og frama, ef hann hafði vit og orku til, en öðru máli var að gegna um unglingsstúlkuna, henni stóðu fáir vegir opnir og átti oftast lítillar eða engrar menntunar völ. En Briet var ekki sú kona, er vildi lúta gömlum vanakenn- ingum. í hrjósti hennar hrann heit frelsisþrá og réttlætistilfinn- ing, er knúði hana til að risa upp á móti kúgun og þröngsýni og krefjast til handa sjálfrar sín og kynsystra sinna meira frels- is, meiri menntunar og fullkomins jafnréttis. Til þess að geta vakið konurnar sjálfar til hugsunar og skiln- ings á þessum málum og sameinað þær i baráttu fyrir réttind- um sínum, byrjaði hún að gefa út „Kvennablaðið“, og hélt því út i rúman aldarfjórðung, Blaðið var afburða vel ritað, og svo vinsælt, að ennþá kenn- ir i orðum þeirra kvenna, er á það minnast og lásu það, ann- aðhvort sem fulltiða konur eða unglingar, hlýju og þakklætis, eins og minnzt sé gamals vinar, mun og margri ungri sveita- stúlkunni hafa fundizt sér opnast nýir lieimar við lestur þess. Einnig gaf hún um tima út „Barnablaðið“. í blaði sinu þreyttist hún ekki á að eggja konur lögeggjan og livetja þær til dáða. Árið 1907 stofnar hún Kvenréttindafélag íslands og var um 20 ár formaður þess, en árið áður liafði hún sótt þing Alþjóða- kvenréttindasambandsins og kynnzt störfum þess og eignazt vjni, sem eins og hún helguðu krafta sína réttindabaráttu kvenna. Mun sú kynning hafa haft mikil og djúp áhrif á hana og aukið henni trú á sigur. Á næstu árum á eftir nær haráttan hámarki sinu undir for- ystu Kvenréttindafélags íslands, og er frú Bríet hinn sjálfkjörni foringi, enda skorti hana fátt, sem slíkan má prýða. Hún er gáfuð, stórhuga, djörf og prýðilega máli farin, bæði i ræðu og riti. Hún fylgir málunum fast eftir, en mun þó jafnan hafa gætt allrar prúðmennsku í sókn sinni. Má með sanni segja, að konunum hafi orðið vel ágengt og hver sigurinn fylgt öðrum: 1908 fá þær, 25 ára og eldri. kosn- ingarétt og kjörgengi til bæja- og sveitastjórna, 1911 öðlast þær aðgang og rétt til æðri menntastofnana og embætta, 1915 kosn- ingarétt og kjörgengi til Alþingis, sá réttur er þó í fyrstu tak- markaður við 40 ára aldur, og loks í frelsisöldu þeirri, sem fór yfir heiminn eftir heimsstyrjöldina siðustu og náði alla leið til 11

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.