Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Page 81

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Page 81
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 167 óhamíngjusamari cmi afgángurinn af mannkyninu, ööru nær, og áreiðanlega ekki verri en utantukthússfólk upp og ofan, — að undanteknum fylliröftunum.“ Þó kemur þar, að Ólafur veikist í tuktliúsinu og hélt hann væri að deyja. „Ef til vill mat liann frelsið að verðleikum fyrsta sinni á þessari stund. Hið ábyrgðar- lausa líf tukthússins, áhyggjulaust, á annara kostnað eins og lif auðkýfinga, hvað var það hjá því að vera lítilsvirt skáld og utantukthússmaður? Án frelsis ekkert líf." „Upp frá þeini nótt þjáðist hann af ótta við tómið kríngum sig: að vera einn, að þekkja eingan í heiminum: að elska eingan, að vita sig ekki elskaðan af neinum; og þó framar öllu öðru óttanum við að sönn ást sé ekki til, heldur aðeins ein krukka vatns í sólar- hitanum. Dagar hans liðu í forspeglun dauðans." En þá ber það til tiðinda einhvern dag, að hann dreymir draum eða hann fær vitrun. „Bundinn maður, kalinn á hjarta, mitt i þeim enda- lausa dauða, sem grúfir yfir heimsins minnsta lífi, þá er hann snögglega gagntekinn hugboði þess að nú muni Sigurður Breið- fjörð hafa ekið frá himnum eftir lánga dvöl. Afklæddur kápu sýnileikans er skáldið nú aftur kominn, ef til vill byggjari efri himna en fyr, þar sem hvorki rikir franiar litur né form. Hvern himin hann kann að byggja: gullreið hans er hér. Og hann segir þrjú orð. Hann segir eitt dularfullt nafn. Þetta nafn ómar gegnum hinn goðkynjaða draum, i skjótri svipan er þvi slúng- ið leifturletri á himin sálarinnar: Hún heitir Bera.“ Hið fyrsta, sem Ólafur gerir, þegar hann losnar úr fangelsinu, er að leita uppi leiði Sigurðar Breiðfjörðs. Ég get ekki stillt mig um að láta menn heyra liér eina blaðsíðu úr bókinni. „Hann var mest- ur allra alþýðuskálda á íslandi. Þegar aðrir menn fóru i há- skólann i Kaupmannahöfn að nema djúpsett vísindi og fagrai listir, þá var hann sendur til Grænlands að beykja tunnur. Þegar dándismenn unnu þrekvirki i almennri meðalhegðun: settu bú saman, gerðu sér unaðssæll heimili með fríðri konu og þægum börnum, þá seldi hann sína konu fyrir hund. Þegai aðrir hófust á tinda frægðarinnar og hlutu embætti, nafnbætur og tignarmerki, þá var hann dæmdur i tuttugu og sjö vandar- högg. Höfðingjar þjóðarinnar, stórskáldin og forverðir andans sönnuðu með lærdómi og málsnild, að hann væri leirskáld og fífl. Þegar mætir menn fengu merkilegt andlát í skauti fjöl- skyldunnar, og elskandi hendur veittu þeim siðasta umbúnað, þá varð hann hungurmorða i köldu útliýsi og sveitarstjórnin lél keyra hræið burt. En andi hins fátæka alþýðuskálds, sem hinir lærðu höfðu að eingu og stórskáldin fyrirlitu, hefur buið með islenzku þjóðinni i þúsund ár, i fastilju afdalakotsins, 1

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.