Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Page 93

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Page 93
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 179 irm, einn í hópi þúsundanna á flótta. En fjöldi samferðamann- anna var að flýja heimili sin og föðurland, allt sem þeim var kærast, eitthvað út i heiminn — ég var að halda heim. Á inn- siglingunni til New York borgar, að morgni, er við sátum að kaffi- drykkju, stendur maður upp frá næsta borði, gengur til min og segir: Undskyld, mit Navn er Gudjonsson. Rejser De ogsaa til Island? Þetta var Ingvar Guðjónsson, útgerðarmaður, og liafði hann verið samskipa frá Genúa. Með þessari stuttu frásögn minni vildi ég aðeins segja eitt: Ég lagði talsvert að mér til að komast fljótt heim. Ég gat með engu móti hugsað mér að vera fjarverandi því starfi, sem nú bíður okkar i Máli og menningu. Hinir breyttu timar hafa gert starfsemi félagsins margfalt nauðsynlegri en fyrr. íslenzk menn- ing og íslenzk tunga er í hættu, nema við gætum fyllstu ræktar- semi og alúðar. Öll íslenzk alþýða þyrfti nú að eiga auðveldan aðgang að verkum beztu rithöfundanna, öllu því, sem vand- aðast og bezt er skrifað á islenzka tungu. Á þessum tíma verða íslenzk efni að ganga fyrir öllu, sem alþýðan les. Við lestur hinna beztu bókmennta okkar glæðist ástin og skilningurinn á sogu og lífi þjóðarinnar, landinu og tungunni. Hver íslending- ur, sem þekkir þjóð sina gegnum skáldskap hennar og sögulega lífsbaráttu, veit fyrst, hvað þjóðin á mikinn auð að vernda og hvar liggja hans eigin rætur. Unir stjórn Máls og menningar þvi illa, að einmitt nú, þegar mest væri þörf að auka útgáfu félagsins, skuli þurfa að draga úr henni, vegna stórum aukinn- ar dýrtíðar. Samt hljótum við að fagna þvi, hvað starfsemi þess er komin vel á veg. Með tímariti okkar getum við beint athygli þjóðarinnar að hinum brýnustu verkefnum og þeim bókum, sem hún þarf nauðsynlegast að lesa. Með útgáfunni á úrvalsritum hinna beztu íslenzku skálda er stefnt í rétta átt. Félagsmenn liafa þegar fengið úrvalsljóð Stephans G. Stephanssonar, nú fá þeir öll verlt Jóhanns Sigurjónssonar, og á þessari braut verður haldið áfram. En þó er mest vert um Arf íslendinga. Fyrir nokkrum árum sagði ég í grein um Sigurð Nordal (Rauð- um pennum 1936) eitthvað á þá leið, að gott væri að vita menn- ingararf þjóðarinnar i gæzlu manns, sem jafn næman og djúp- an skilning hefði á allri sögu og bókmenntum íslendinga. Þá var Mál og menning ekki til, né heldur hugmyndin að Arfi íslendinga. Þá var það aðeins hugboð, sem nú er orðinn veruleiki, að menn- ingararf-urinn væri í hættu og þyrfti sérstakrar gæzlu við. Okk- ui grunaði ekki einu sinni fyrir ári siðan, að Arfur íslendinga, Titið um náttúru landsins, sögu þjóðarinnar, menningu, bók- menntir og listir, fengi jafn tímabært gildi og nú er raup á

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.