Tímarit Máls og menningar - 01.08.1940, Síða 97
Halldór Kiljan Laxness
leggur Menntamálaráðsstyrkinn í sjóð.
Eins og frægt er orðið, lækkaði Menntamálaráð rithöfunda-
laun Halldórs Kiljans Laxness allverulega á síðastl. vetri, eftir
að Alþingi hafði á þrem þingum í röð, og með vaxandi meiri-
hluta, samþykkt, að hann skyldi njóta höfundalauna á hinni
föstu 18. grein fjárlaganna, að upphæð 5000 krónur, sem svar-
ar árslaunum undirtyllu á skrifstofu i Reykjavík. Þótt ekki sé
kunnugt, að H. K. L. hafi skipt um skoðun í neinum aðalat-
riðum síðan honum voru fyrst úthlutuð þessi laun af Alþingi,
dró Menntamálaráð launin af honum með þeim formála, að
styrksviptingin ætti að stuðla að því, að höfundurinn tæki upp
aðrar skoðanir á stjórnmálum og öðrum málum, yrði sannari
Islendingur og ritaði bækur af meiri list og á betri íslenzku
hér eftir en hingað til. Þessari skoðun Menntamálaráðs var aft-
ur og aftur lýst yfir af formanni ráðsins i dagblaðinu Tíman-
mn og í þingræðum. En þegar til kom, neitaði H. K. L. að viður-
kenna lækkunina með þvi að taka ekki við fé af Menntamála-
ráði, sem veitt var í þeim tilgangi að hnekkja höfundarheiðri
hans og storka honum. Hefur hann nú lagt þessar 1800 krón-
ur, sem ráðið úthlutaði honum, í sjóð til að styrkja rithöfunda,
sem á að svelta til hlýðni við einhvern eða einhvern geðþótta
tilviljanlegra stjórnmálamanna. Hann kemst svo að orði, i hlaða-
viðtali nýlega, að sjóðurinn hafi það markmið, að „vernda skáld,
hvaða skoðanir sem þeir hafa, fyrir því, að stjórnmálamenn,
sem fara með völdin í það og það skiptið, fari inn í búr þeirra."
Hann segir enn fremur svo í viðtali þessu: „Peningaupphæð-
in, 1800 krónur, sem er stofnfé sjóðsins, er fé það, sem mér
var úthlulað af Menntamálaráði nú á þessu ári. Þetta fé var
mér úthlutað sem straff og aðvörun, mér til auðmýkingar, sam-
kvæmt opinberri yfirlýsingu formanns ráðsins í dagblöðum og
á Alþingi.“ Segir hann svo, að hann telji ekki samboðið virð-
ingu sinni sem rithöfundar að taka við slíku fé. Tímarit Máls
og menningar hefur fengið leyfi til að birta skipulagsskrá hins
nýja sjóðs, og fer hún hér á eftir:
SKIPULAGSSKRÁ
fyrir sjóð til verndar andlegu frelsi íslenzkra rithöfunda.
1. gr. — Sjóður þessi er stofnaður 23. marz 1940, af Halldóri
Iviljan Laxness rithöfundi, í tilefni af úthlutun Menntamálaráðs
á styrktarfé til rithöfunda, skálda og annarra listamanna ár-
ið 1940.