Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 24

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 24
204 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR lenzkir menn skilji þær bezt og leggi við þær mesta alúð allra manna. Það má teljast víst að þessari starfsemi verði haldið áfram, von- andi með vaxandi styrkleik. Það hefur komið í Ijós, að saga forn- bókmennta vorra, sem þó var talin sæmilega rannsökuð af fyrri mönnum, tekur ærnum breytingum við nánari athugun og betri lestur. En þegar til síðari alda kemur, þar sem efnið er miklu verr í haginn búið, er fjöldi óleystra verkefna svo mikill að manni blöskrar. Undirstaða gjörvallra íslenzkra bókmenntarannsókna, allt fram á 19. öld, eru fullnægjandi útgáfur. Þegar bókmenntir okkar áttu sinn blómatíma voru engar prentsmiðjur til í heiminum, og allt sem við eigum frá þessu skeiði hefur þá að sjálfsögðu komizt til okkar í handritum. Eftir að prentlistin komst til íslands var henni lengi vel beitt nálega eingöngu í þjónustu kirkjunnar, en skáld og höfundar héldu engu að síður áfram að yrkja og semja, og þetta leiddi til þess að sægur rita frá 16., 17. og 18. öld komst ekki á prent að höfundum lifandi, heldur geymdist aðeins á skrifuðum bókum. Það var að sínu leyti eins og ef prentsmiðjur nú á dögum vildu ekki líta við neinu öðru en Kirkjuritinu og Bjarma og Hundr- að hugvekjum og sálmum eftir Valdimar Snævar, en hins vegar sætu menn hingað og þangað um landið álútir við að skrifa sér upp Fegurð himinsins eða Arf Islendinga eða Fögru veröld. Verk eins og ævisaga Jóns Indíafara, píslarsaga Jóns Magnússonar, biskupa- sögur séra Jóns í Hítardal, ævisaga Jóns Steingrímssonar, voru ekki prentuð fyrr en á 20. öld. Á síðustu hálfri annarri öld hefur mjög mikið verið að því gert að koma íslenzkum fornritum út á prent, en engan sem ekki þekkir til mun þó geta grunað hversu fjarri fer að sú starfsemi hafi ennþá verið unnin til nokkurrar hlítar. Um útgáfur gegnir sama máli og mörg verk önnur að menn úr mismunandi hvirfingum gera til þeirra mismunandi kröfur, og verður að greina milli þess sem ég kalla hér undirstöðuútgáfu og lestrarútgáfu. Undirstöðuútgáfan er gerð beint eftir sjálfum handritunum; hún setur sér það markmið að lýsa þeim vandlega, grafast fyrir um afstöðu þeirra hvers til annars, og sía frá þau sem ónýt eru; aðaltextinn er helzt prentaður stafrétt
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.