Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Page 56

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Page 56
236 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR í skapi, glaðværðin mun óefað hafa átt sér búsetu í líkama hennar, þegar hún var ung. Allt heimilisfólkið sat að snæðingi, þegar ég kom inn í hina þröngu stofu. Gestrisni húsráðanda lýsti sér, sem betur fór, ekki í því, að hann byði mér að borða, heldur þannig, að hann þreif stól- inn undan einum af yngri kynslóðinni og lét mig setjast á hann úti við gluggann. Ur sæti mínu gat ég horft á „stúlkuna“ kaupmanns- ins í kyrrþey, og hugsanir mínar héldu af stað: Skyldi þessi hrukkótta og af sér gengna lífvera liafa lifað öðru horði á skáldskap kvæðisins góða, eins og höfundur þess hafði gert? Skyldi ástarlíf hennar í löngum og harnfrekum hjúskap hafa átt kjarna sinn í rómantík hins litla, misheppnaða ævintýris, sem gamla kaupmanninn dreymi um ennþá? Eiga ekki ást og list alla þá lof- gjörð skilið, sem þeim er færð, fyrst hvorki fátækt og strit né upp- hefð og auður fá varpað á þær bleiku skini hversdagsleikans eða sveipað grárri blæju gleyntskunnar? Mér fannst ekki lengur hinn háfætti óður hins deyjandi rnanns, þegar hann sagði mér sögu sína, vera hroslegur eða óeðlilegur. Það var hinn jarðbundni skilningur okkar, sem var hlægilegur og fátækur. Hinar andríku hugsanir mínar trufluðust af skærum, sem urðu milli yngstu systkinanna út af sérstöku stykki af hinni signu grá- sleppu, sem ætlað er það hlutverk að sjá þjóðinni fyrir hraustum sjómönnum, hispursmeyjum og, ef illa tekst, skáldum. Hinn rauðhærði hnokki, sem sigur bar af hólmi, var sýnilega ekki kominn á það stig tilfinningalífsins, sem hamlar því að menn beiti kvenkynið harðneskjulegustu aðferðum hernaðarlistarinnar. Þegar refsidómur liafði gengið yfir hann, án þess að sætta að nokkru systur hans, var borðum hrundið, og ég gat upphafið erindi mitt við „stúlkuna“. Ég byrjaði á því að afhenda henni megnið af fé því, er kaup- maðurinn fékk mér, og lýsti það gjöf frá honum. Hún kannaðist vel við manninn, enda var hann bæjarfulltrúi og annað, sem merkur kaupsýslumaður og góður borgari á að vera. En hún fékkst ekki til að líta á peningana sem vinargjöf, heldur setti þá óðar í samband við kosningar. Ekki minntist hún í fyrstu þess, að hún hefði nokk-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.