Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Síða 67

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Síða 67
GÍSLl BRYNJ ÓLFSSON 247 Af herðum nú með hölda móði hristið arga þræla mergð, og hundingja í hjartablóði lierðið þau hin deyfðu sverð! Svo kvað Gísli Brynjólfsson vorið 1848. Og honum var ekki nóg að kveða. Hann vissi vel. að langt norður í hafi, úti við heimskauts- baug, kúrði fátæk og vesöl þjóð, sem enn lifði í skugga margra alda þrældóms og kúgunar. Fyrir þá þjóð vildi Gisli vinna eitthvað stórt og mikið. Hann vildi vekja hana til hugsunar um kjör sín, skýra henni frá því, hvað væri að gerast í öðrum löndum, og magna á þann veg sjálfstjórnar- og umbótakröfur hennar. Hann fékk í lið við sig annan ungan mann, sem þá var bæði róttækur og stórhuga. Það var Jón Þórðarson Thoroddsen, Þeir félagar höfðu rætt um það sín á milli árið 1847 að gefa út rit með kveðskap sínum og halda því áfram árlega, ef vel yrði tekið. Var i þessum samtökum þriðja skáldið. Benedikt Gröndal. Allt voru þetta ungir menn, sem hugðust nú kveða sér hljóðs í fyrsta sinn, svo að um munaði og eftir væri tekið. Elztur var Jón, 29 ára gamall. þá Gröndal, 21 árs að aldri, en Gísli yngstur, — hann stóð á tvítugu. Gröndal lenti þó fljótlega í rimmu við félaga sína og gekk úr skaftinu. Hinir tveir létu það ekki á sig festa, en stofnuðu tímaritið. Kölluðu þeir það Norðurfara, þar eð það væri sent sunnan frá Kaupmannahöfn og norður til íslands. Norðurfari kom út í tvö ár, 1848 og 1849, og má að ýmsu leyti telja hann mesta merkisrit. Virðist mér hann naumast hafa hlotið þann sess í sögunni, sem honum ber. Það, sem gefur riti þessu gildi, eru ekki eingöngu kvæði þeirra Jóns og Gísla, sem birtust þarna mörg í fyrsta sinni, heldur miklu fremur hitt, hversu Norðurfari er í náinni snertingu við hamrandi æðaslög og ólgandi líf umheimsins. Aldrei fyrr hafði íslendingum verið gefinn kostur á riti, sem fjallaði af svo brennandi ákefð um baráltumál dagsins, ekki aðeins kritinn heima fyrir, en brá upp hinum stærri sjónarmiðum, þar sem barizt var um lífskröfur, og orustuvöllurinn var stórveldi og álfur — jafnvel hnötturinn allur, I formála fvrra
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.