Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 104

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 104
284 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR kerlingartruntur, gaddaskötur o. s. frv. o. s. frv., virðast haldnar af sjúklegri kynhvöt. „Þær hallrönguðu sér utan í hann . . skotruðu gfyrnunum og rilluðu allar til, svo það brakaði og marraði í kerlingabeinunum . . Þeim fórst, þess- um gömlu skrjáfandi skinnbrókum, að vera að frýnast í silki; þeim sómdi það, þessum skrukkum, að vera að rilla sér og dilia eins og götumeyjar . . .“ (bls. 16) „þær . . glenna sig framan í hann og hanga í honum, — rétt núa sér við mjaðmirnar á honum“ (bls. 15) „Eg held hún . . hafi . . blásið og púað af losta og forsmán" (bls. 235) „Var það sosum nokkurt karlmennskuverk að þukla og þreifa — nei, kreista og . . . og já, kremja kvensniftir — eða . . . eða sleikja á þeim trantinn, freyðandi votan trantinn?" (bls. 102). Þessi dæmi verða að nægja til að sýna háttvísi höfundarins. Þau mega teljast tiltölulega ktirteisleg miðað við önnur sem eru þess eðlis að ég kynoka mér við að til- færa þau. Forstöðukonan á þessu hæli, setn mun eiga að vera miðaldra kona, „liálærð og margsigld", gerir meira að segja tilraun til þess að fá gamalmenn- ið Eirík Atlianíusson til þess að ciga lag við sig og þegar það ber ekki tilætl- aðan árangur reynir hún að niðurlægja hann sem mest hún má. Ilér mun ég láta staðar numið við að tilgreina smekkleysur þessarar bókar, og er þetta þó aðeins ótrúlcga lítið brot af þeim. Hins vegar tel ég mig þess ekki umkominn að veita þeim þau skil sem verðugt væri. Það er hlutverk handa sálfræðingi. Það er vissulega verkefni fyrir rithöfund að lýsa gömlu fólki, lífskjörum þess, sérkennum og vandamálum, en bók eins og þessi er fangtum verri en eng- in bók. Hún er ekki aðeins móðgun við íslenzk gamalmenni heldur einnig ís- lenzka lesendur. Hún er höfundinum til minnkunar og dómgreind útgefenda til skammar. Til samræmis við annað er prófarkalestur mjög lélegur og prentvill- ur margar. Sem dæmi um vandvirknina má nefna að bókin heitir á kili Kon- ungur á Kálfsskinni, utan á spjaldi Konungurinn á Kálfsskinni og á titilblaði Konungurinn á Kálfskinni! Myndir eru í bókinni eftir listamann sem gleymzt hefur að nefna. Þær hefðu átt skilið þokkalegra umhverfi. Eitt af því minnisstæðasta sem Snorri Sturluson hefur skrifað er kaflinn um Hrærek konung blinda sem lézt á Kálfskinni í Eyjafirði. Nafn þessarar bókar mun eiga að vera skírskotun til þeirrar snilldarlýsingar. Má segja að það kóróni smekkleysurnar í þessari einstæðu bók. M. K. Leijur Miiller: í FANGABÚÐUM NAZISTA Víkingsútgáfan 1945, 226 bls. Bók þessi er eins konar skýrsla ur.gs Reykvíkings um það, sem fyrir hann bar, frá því hann lenti í klóm þýzku lögreglunnar í Osló 21. október 1942 og þangað til hann komst loks til Svíþjóðar 1. maí 1945. Eg þarf ekki að taka fram, að skýrslan er ófögur. En höfundurinn lætur þess getið í formála bók-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.