Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 106

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1945, Side 106
286 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR afbrot Jieirra hefðu verið helber hégómi, lítilsháttar óvitaskapur, smávegis gönuskeið, sem bezt væri að gleyma, leiðinleg slysni, sem affarasælast mundi að J)vo burtu úr endurminningunni með vinsamlegum heimboðum og rjúkandi púnsdrykkju. Þeir samlandar nn'nir, sem tala hæst um þrengingar þýzku þjóð- arinnar í vetur, (en J)ví fer fjarri, að þær séu meiri og átakanlegri en þreng- ingar annarra þjóða á meginlandi Evrópu), klökknuðu hvorki né grétu, þegar fyrstu íregnirnar bárust hingað af atferli nazista, Gyðingaofsóknum þeirra, bókabrennum, kommúnistamorðum og fjöldahandtökum. Nazistar voru ekki fyrr komnir til valda í Þýzkalandi en þeir reistu fangabúðir víðsvegar um Jandið, sem voru í reyndinni ekkert annað en liryllilegustu pyndingastöðvar og aftökuver, þar sem Gyðingum, pólitískum andstæðingum, vísindamönnum, alþýðuleiðtogum og menningarfrömuðum var útrýmt. Tugmilljónir hinna beztu manna og kvenna hafa þolað viðurstyggilegustu pyndingar í þessum fanga- búðum. TugmiUjónir þeirra bafa látið lífið í þessum fangabúðum. Þeir hafa verið limlestir, kvaldir til dauða, hengdir, skotnir, kæfðir með gasi, brenndir lifandi, sveltir í hel. Sérhvern siðmenntaðan mann setur liljóðan, þegar hann heyrir nöfn eins og Dachau, Belsen, Buchentvald, Sachsenhausen, Oswiecim og Majdenek, svo að nefnd séu nokkur þýzk eyðingarver af tugum, jafnvel liundruðum. Og sennilega eru lýsingar fanganna, sem sluppu lifandi úr þess- uin jarðnesku helvítum, ásamt ljósmyndum, kvikmyndum og skýrslum frétta- ritara og rannsóknarnefnda Bandamanna, voveiflegustu og myrkustu vitnis- burðir urn mannlega grimmd, sem til eru. Þeir Þjóðverjar, sem unnu að fram- kvæmd þessara glæpa, skiptu milljónum. Framhjá þeirri staðreynd er ekki hægt að sneiða. Hernaðarvél nazismans hefur verið sigruð og moluð sundur eftir langa og blóðuga styrjöld, en J>ví fer víðs fjarri, að slíkt hið sama megi segja um andleg ítök hans í einstaklingum, stéttum og jafnvel þjóðum. Nazisminn er ekki sér- þýzkt íyrirbæri, heldur alþjóðiegt, þótt hann hafi hvergi náð svipuðum tökum sem í Þýzkalandi. Rætur hans liggja ekki fólgnar í persónuleik einstakra valdafíkinna stjórnmálamanna, heldur ber að leita þeirra í samfélagsháttum og menningu þjóðanna. Og margt bendir til þess, að nauðsynlegt sé í framtíð- inni að hafa fyllstu gætur á þeim öngum hans, sem ekki verða upprættir í skjótri svipan, svo að hann fái ekki í annað sinn að steypa bölvun og tor- tímingu yfir mannkynið. Sú varðgæzla getur því aðeins borið tilætlaðan árangur, að menn skilji til hlítar eðli nazismans og markmið, sem birtist hvorttveggja afhjúpað í fangabúðum hans og eyðingarverum uin gervalla Evrópu. Þess vegna vildi ég óska, að flestir Islendingar kynntu sér bók Leifs Mullers og hefðu jafnan hugfast við lestur hennar, að milljónir manna hafa sömu sögu að segja og hann eða miklum mun geigvænlegri, en aðrar milljónir eru ekki til frásagnar um örlög sín í klóm þýzku nazistanna, þar sem þær eru nú aðeins duft og aska. Ó. J. S.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.