Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Blaðsíða 13
RITSTJORNARGREINAR
3
En nú er okkur sagt að hér á landi fari kreppa í hönd, og allir verði að spara og
Islendingar hafi ekki efni á að eyða fé í hégóma eins og tónlistarmenningu. Þessi
skoðun varð ofan á í hinu háa Alþingi, sem samþykkti hæstu fjárlög íslendinga fram
að þessu, en felldi 100 þús. króna styrk til sinfoníuhljómsveitar. Það skal sagt bæjar-
stjórn Reykjavíkur til lofs að hún tók þessu máli með meiri skilningi, og veitti
liljómsveitinni styrk sem var ólíku ríflegri bæði að upphæð og tiltölu en sá sem
farið var fram á við Alþingi. Hér skal ekki eytt mörgum orðum að þessari afgreiðslu
Alþingis; hún er með þeim endemum að ekki er hægt að hafa um hana vægara
orð en hneyksli. En auk þess skilningsskorts á menningarmálum sem hún ber vott
um er hún engu síður fávísleg frá fjárhagslegu sjónarmiði. Hér hefur árum saman
verið eytt miklu fé og fyrirhöfn tii eflingar tónmenntum í landinu, bæði með bein-
um tilstyrk ríkissjóðs og framlögum einstakra manna. Og þegar loksins er komið
svo langt að þetta starf fer að bera þann ávöxt og sýna þann árangur sem alltaf
hefur verið keppt að, þá á að „stinga við fótum“, eins og alþingismönnum er tamt
að segja, eða öllu heldur bregða fæti fyrir þessa framfaraviðleitni í sjálfu loka-
skrefinu. Þetta er álíka viturlegt eins og ef ríkið hefði verið að byggja hús í mörg
ár, en gæfist svo upp þegar ekki vantaði annað en þakið og léti bygginguna standa
og grotna niður.
Þetta má ekki verða. Einhver ráð verður að finna til þess að hægt sé að lialda
rekstri sinfoníuhljómsveitarinnar áfram. Eftir þeirri reynslu sem þegar er af henni
fengin er ekki til þess hugsandi að íslendingar einir allra menningarþjóða eigi
framvegis að fara á mis við þetta undirstöðuatriði allrar tónlistarmenningar.
J.B.
TMál oy menning
Prentun á febrúarhefti tímaritsins dróst svo lengi vegna pappírsleysis að við
höfum orðið að láta tvö hefti koma saman, og eru þau tíu arkir að stærð eða sem
svarar meðalbók. Þó komst ekki að nærri því allt það efni sem ákveðið var. í
næsta hefti koma ritgerðir eftir Gunnar Benediktsson og Þórberg Þórðarson, smá-
eaga er Árni Halldórsson hefur þýtt eftir norska skáldið Olav Duun, o. m. fl.
ASalfundur í félagsráði Máls og menningar var sunnudaginn 4. júní. Formað-
ur flutti skýrslu félagsstjómar. Utgáfa félagsins hefur aðeins éitt ár áður (1946)
verið jafnmikil sem síðasta ár: 80 arkir eða 1280 síður, og er það geysimikið fyr-
ir einar 50 krónur eins og verðlag er nú orðið, enda varð að taka af ágóða fyrra
árs til að standast kostnað. Tímaritið hafði aldrei verið jafn þéttprentað og stórt,
22 arkir eða 352 síðna bók. Endurskoðaðir reikningar félagsins voru á fundinum
lagðir fram og samþykktir, og verða birtir í næsta hefti. Stjóm félagsins var end-
urkosin, Kristinn E. Andrésson, form., Jakob Benediktsson, varaform., Halldór
Kiljan Laxness, Ragnar Ólafsson og Sigurður Nordal; eins varamenn, Halldór
Stefánsson og Ragnar Jónsson hrmflm., og endurskoðendur, Haukur Þorleifsson
og SverrirThoroddsen. Ur félagsráði gengu Bjöm Sigfússon, GuðmundurThorodd-
sen, Jakob Benediktsson, Ólafur Eiríksson og Páll ísólfsson, en voru endurkosnir.