Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Page 29
ANDLEGT FRELSI
19
sem einhverjir ómerkilegir íramagosar í pólitík hafa troðið upp með
hér og þar, oft til að hrósa Bretum og hrezkri pólitík. Svo kemur nátt-
úrlega suðan um höfðingslund Bandaríkjanna, Marshallshjálpina, At-
lantshafsbandalagið, vopnasendingar til að myrða fólk í Evrópu, og
aldrei gleymist ógnun kommúnismans og yfirgangur Rússa, sem skulu
knúsaðir með atómsprengjunni.
Þetta er andi og kjarni erlendu útvarpsfréttanna á Islandi.
Með þessum lághöfða fréttaburði eru þjóðinni innrættar mjög ein-
hliða, afskræmdar og rangar hugmyndir um alþjóðapólitík og ástand
í mannfélagsmálum heimsins, útvarpshlustendur leiddir markvíst og
að yfirlögðu ráði í hina verstu villu, varnarlaust fólkið blekkt og logið
að því vísvitandi.
Eg vildi spyrja:
Hvers konar undirlægjur eru ráðamenn útvarpsins?
Líta þeir á sjálfa sig sem vinnuskepnur brezka heimsveldisins og
amerískra auðhringa?
Er það Guði og mönnum ofurefli að fá þá til að sjá sóma sinn held-
ur í því að haga fréttum útvarpsins eftir andlegum þörfurn okkar ís-
lendinga? Við vorum uppaldir við góða sagnamenn, sem sögðu
skemmtilegar sögur og sögðu hlutlaust frá. En þessar ennislausu falsanir
neðan úr sorpræsum Lundúnaborgar leiðast okkur.
Missum við mikils í, þó að okkur sé hlíft við að hlusta á kolaaukn-
inguna í Englandi oftar en svona einu sinni á ársfjórðungi?
Skiptir sálarlega uppbyggingu okkar það nokkru máli, að einhver
andlega sljór herforingi hefur sagt suður í Afríku, að Bretar hafi
klárað sig gott síðan stríðinu lauk, eftir að við erum búin að heyra
þá sjálfa segja frá því svona 180 sinnum á ári?
Er ekki hægt að lofa brezkum eða bandarískum stríðsgeneral að
ganga til kukks án þess að útvarpið segi frá því bæði í morgun- og
kvöldfréttum?
Eigum við, vopnlaus og „hlutlaus“ þjóð, að halda áfram að vera
hundtík í styrjaldargjammi brezkra og bandarískra stríðsseppa?
Er það til að efla andlegt frelsi að forgylla allt fyrir þjóðinni, sem
fram fer í ríkjum kapítalismans, en fela vandlega fyrir henni smátt og
stórt, er gerist í löndum þeirra 800 miljóna, sem búa við hagkerfi
sósíalismans ?