Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Side 42

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Side 42
32 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR stað þar sera það er meðtekið í viðurkenníngu þess, að allar nauðsyn- legar aðstæður vanti til sköpunar og flutníngs listaverka; en ef slíkt verk er altíeinu sett í stórfelda umgerð, ef fákunnátta eða viðvaníngs- háttur er látinn birtast í tröllauknu formi með viðhöfn og tilætlunar- semi, þá fer ekki hjá því að árángurinn verði þesskonar afkáraskapur sem verkar öfugt við list: við skulum hugsa okkur að maður sem aldrei hefur snert á pentskúf taki sig til og máli Gullfoss í fullri stærð, síðan komi auðugur vinur hans og setji myndina í miljón króna ramma og heingi hana upp í miðju Austurstræti. Maður sem lítt kann til saungs getur þótt fyrirtaks saungmaður í afskektu bygðarlagi þar sem fólki leiðist; menn eru þakklátir fyrir þá tilbreytíngu í fásinninu sem saungur hans kann að tákna. En menn skvldu varast að halda að saungur þessa manns batni á því þó hann tæki til að syngja á glæsi- legasta saungpalli veraldarinnar. Ef maðurinn villist uppá slíkan pall þá er saungur hans orðinn ömurlegt fyrirbæri og slys í staðinn fyrir list. Þegar nú íslenska þjóðin hefur lagt uppí hendur oss listamönnum dýrmætari tæki til listflutníngs en vér höfum áður átt, einsog til dæmis þetta þjóðleikhús, þá hvílir sú frumskylda á listamönnunum að afla sér þeirrar mentunar í list sinni, sem sé í samræmi við tækin: veg- semdin krefst af listamanninum meiri elju og samviskusemi en áður. Þegar tækin eru orðin þetta fullkomin, þá er ekki leingur nein afsökun í því að vera viðvaníngur. Á nítjándu öld áttum vér að vísu ekki listamenn í mörgum greinum, vér hölluðum oss mestan part að þjóðlist vorri, bókmentunum. En þá, aungvu síður en jafnan áður í bókmentasögu vorri, voru flest skáld vor svo mentuð sem best mátti verða á almennan mælikvarða, þau höfðu mjög mikið vald á listrænum meðulum sínum, þarámeðal ótrúlega þekkíngu á túngunni og leikni í meðferð hennar. 011 voru stórskáld vor á síðustu öld sprottin úr alþýðlegum jarðvegi, þeir voru uppaldir og mótaðir í æsku af sérstæðri innlendri þjóðmenníngu vorri alþýð- legri, ríkri að fornri erfð, margvíslegum sagnafróðleik, ljóðlist og líf- speki bæði heiðinni og kristinni lángt framanúr öldum; síðan hlutu þessir menn alla þá hámentun skáldskapar og bókmenta sem hægt var að afla sér á Norðurlöndum, heimsbókmentirnar voru þeim opinn fjársjóður, þeir voru latínulærðir, þeir voru grískumenn, þeir voru
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.