Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Page 133

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1950, Page 133
MYNDLIST 125 stæða vakandi lífs, og viðurstyggð á ferskri tjáningu í listum rökrétt afleiðing þess ástands sem henni er eiginlegt. Það var hún sem reyndi að svelta Rembrandt inni. þegar hann málaði sín merkustu verk, en þykir nu henta að hefja hann til skýjanna ásamt landa hans, Vincent Van Gogh, sem hún sálgaði fyrir 60 árum síðan. ■—■ Hér á Islandi hefur þessi tegund gagnrýni, sem fyrir hlálega ráðstöfun forsjónar- innar fær því að eins notið sín, að í umhverfi hennar sé verið að skapa það sem hún hatar mest — lífræna' list — verið athafnasömust á bókmenntasviðinu, þar til á síðustu árum. Lengi var hún á hælum okkar fremstu rithöfunda eins og t. d. Laxness og Þórbergs, en virðist nú vera að linast á því að elta þá og snýr sér meira að yngri mynd- listarmönnum þjóðarinnar. Fyrir nokkru var ég að blaða í bók sem var gefin út af „Galerie- Louis Carré“ í París 1945, og rakst á gagnrýni frá dögum impression- istanna eftir einhvern B. Constant, og þar stóðu þessar línur: „Þegar öllu er á botninn hvolft, virðist impressionistiska stefnan vera skóli „snobba“ og guðleysingja, vísvitandi eða óafvitandi erki- óvina listarinnar. enda eru dagar hennar þegar taldir —.“ Það var ekki um að villast, hvers konar listdómari var hér að verki, en hvar hafði ég, ekki alls fyrir löngu, lesið eitthvað um myndlist í islenzku blaði. undarlega áþekkt þessu í anda og blæ? Ég leitaði í blaðarusli mínu og dró eftir nokkra stund fram grein úr Alþýðublað- inu eftir Hannes á Horninu. Hún var um Septembersýninguna og þar stendur m. a.: „Ég sagði einusinni hér, að þessi affekteraða list væri ekki annað en fálm örþreyttrar borgarastéttar eftir nýjum nautnum. — Þessi listastefna (hin abstrakta) er að hrynja um öll lönd ■—“ Var nokkur furða eftir þennan lestur, þó að ég félli í guðspekilegar hugleiðingar um stund og legði þá spurningu fyrir sjálfan mig, hvort hinn gamli geðvondi fransmaður sem úthúðaði svo herfilega þeirri list, sem nú þykir sómi þjóðar hans, hefði af æðri máttarvöldumi verið dæmdur til að endurholdgast hér norður í höfum, og settur í það hlutfallslega smáa embætti að berja á nýgræðingi íslenzkrar mynd- listar? — En væri svo, gaf nánari athugun á hinni frönsku bók og Alþýðublaðinu helzt til kynna, að Hannes okkar á horninu væri soð-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.