Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Page 36

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Page 36
242 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR rússnesku flugvélarnar séu mjög sterkar. Og flugmennirnlr, þeir sem viö sáum, höfðu andlit, sem maður treysti fullkomlega. Ein óvænt nýjung hressti hér upp á okkur í fyrsta sinn austan járn- tjalds. Þar eru farþegarnir ekki látnir girða sig beltum, þegar vélarnar hefja sig til flugs eða setjast. Þær taka flugið einart og formálalaust, eins og engin hætta sé í vændum, og lúka fluginu eins og engu sé að kvíða. Þetta losar farþegana við þann hvimleiða grun, að flug sé háska- legt fyrirtæki. Þegar við hófum okkur á loft beltislaus af flugvellinum í Helsinkí, rifjaðist upp fyrir mér frétt af flugslysi fyrir utan London, sem ég heyrði í útvarpi eða las í blaði í sumar. Allir farþegarnir í vélinni hefðu beðið bana, nema sá eini, sem ekki var gyrtur belti. Ég legg skiljanlega engan dóm á það, hvort hann hefur sloppið við dauðann af þeim sökum. En um hitt er sjón sögu ríkari, að rússneskir flugfræðingar telja flugþegum ekki betur horgið með þessum hræðibeltum, sem þeir eru gyrtir með vestan járntjalds. Allan þorra leiðarinnar milli Helsinkí og Leningrað flugum við í skýjum, svo að ekki sá til jarðar fyrr en síðustu 23 mínúturnar. En af því landi, sem þá greindi, er ekkert merkilegt að segja. Það var eins og víðast hvar annars staðar á norðanverðu meginlandi Evrópu: akrar, skógar, þorp og gras á flatlendi. Ég hafði þó gaman af að sjá úr lofti Ladogavatnið, sem varð lífi Leningraðbúa mikill bjargvættur, á meðan arisku „ofurmennin“ sátu um að slátra borgarbúum. Ég hafði kompásinn spenntan um úlnliðinn og hæðarmælinn liggj- andi hjá sæti mínu í vélinni eins og endranær á flugi. Það rís gegn einhverju í hugskotsholi mínu að ferðast eins og skynlaus skepna, sem ekkert mælir og aldrei setur nokkur mið. Páll Ragnars sjómælingameist- ari hafði einhverntíma sagt mér, að í Eystrasalti — hann tiltók nánar staðinn — vísaði kompásnálin í hánorður. Eftir það færi henni að halla til austurs, þegar haldið væri á þann bóginn. Ég reyndi að hafa hlið- sjón af þessari misvísun, þegar ég miðaði áttir með kompásnum austan Finnlands. Ég renndi samt blint í sjóinn með það, hversu misvísunin væri mikil á hverjum stað, taldi þó sennilegt, að ekki munaði mörgum stigum á verkunum segulpólsins og ágizkunum mínum. Stefnu kompás- nálarinnar bar ég líka nokkrum sinnum saman við göngu sólar og átt- ina til pólstjörnunnar. Annars er flugþegum í rússneskum flugvélum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.