Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Síða 83

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Síða 83
TIL VARNAR SKÁLDSKAPNUM 289 Verum óhræddir að notfæra okkur surrealisma osfrv þó við heyrum í Sjálfstæðishúsinu að hann sé dauður. Ismar virðast varla vera hættulegir íslenzkum bókmenntum, og reyndar tel ég það að mörgu leyti mikinn kost hvað þær hafa verið frábitnar því að mynda skóla. Að minnsta kosti aldrei tekið skólana mjög alvarlega. Annars held ég að þetta ofnæmi á báða bóga fyrir bókmenntatízku sé á einhverjum misskilningi byggt; á sköpunarstundum verks held ég höfundar hugsi sízt um tízkuna, það yrði þá varla mjög gott verk. Oft- ast eru það bókmenntafræðingarnir sem búa til ismana á eftir og halda að þeir komist eitthvað nær listaverki með því að líma á það vöru- merki einhvers isma. * Um gagnrýni má segja að hún kemur þeim sem gagnrýndur er sízt að notum. Eins og Rilke segir, ef ég man rétt, er hún þegar bezt lœtur byggð á misskilningi. Einstaka sinnum getur verið að hún forði mönn- um frá að halda áfram á þeirri braut sem þeir eru ekki hæfir til (því til eru ung skáld sem taka mark á gagnrýni), en þá á hún sjálfsagt á samvizkunni að hafa drepið kjarkinn í upprennandi snillingum að jafnmiklu marki. Ung skáld ættu að finna hvöt í andstöðu staðnaðra gagnrýnenda, en jafnvel sú andstaða er engin trygging frekar en hólið. Hvorki níð né hól getur verið þeim nein leiðbeining; þau standa ein á sköpunarstundinni og geta og mega ekki vænta neinnar hjálpar. ¥ Það þykir nú orðið de bon ton að bera ungum íslenzkum skáldum á brýn eliotsku, en þar á reyndar við að þeir tala mest um Ólaf kóng sem hvorki hafa séð hann né heyrt og finnst mér ekki ómaksins vert að eyða orðum að því sérstaklega. Ég þykist vita að hugmyndakerfi Eliots sé dæmt til að farast. En oft finnst mér að okkar tíð hafi fengið ná- kvæmlega sitt form hjá honum. Stundum er talað mjög óvirðulega um aðferð Eliots, menn kalla hana „samsetningarþrautir“ og því um líkt. En þessi aðferð: samband við og tilvitnun til allra bókmennta og allrar sögu, held ég sé ekki jafn forkastanleg og af er látið. Þetta samband, þessi eining er alstaðar í bókmenntunum, að vísu í misjafnlega ríkum mæli og nær misjafnlega langt í tíma og rúmi. Stundum vita skáldin Timarit Máls og menningar, 3. h. 1952 19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.