Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Page 119

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1952, Page 119
UMSAGNIR UM BÆKUR 325 ið óskýrt þótt gerð sé grein fyrir svipuð- um hlutum annars staðar í bókinni, og þá dettur manni í hug hvort útgefandi hafi leitað af sér allan grun; en vera má líka að stærð bókarinnar hafi sniðið skýringunum stakk. Jónas Kristjánsson. Sýnisbók íslenzkra rímna jrá upphafi rímnakveð- skapar til loka 19. aldar. Valið hefir Sir ÍVilliam A. Craigie. 1—111. Edinburgh og Rvík (Leijtur) 1952. Rímnakveðskapur var þjóðaríþrótt ís- lendinga í röskar fimrn aldir, og um langt skeið voru afköst rímnaskálda miklu meiri en í nokkurri annarri grein kveðskapar. Það er því ekki vonnm fyrr að gefið sé út rækilegt úrval úr íslenzk- um rímum allra alda, sýnishorn þeirra bókmennta sem öðrum fremur voru for- feðrum okkar dægrastytting öld fram af öld. Hitt gegnir þó meiri furðu að um útgáfu þessa hefur séð útlendingur, og það maður sem hefur ekki gert íslenzkar hókmenntir að sérgrein sinni, heldur lengstum ævi sinnar haft algerlega ó- skyld störf með höndum. Sir William A. Craigie er Islendingum löngu að góðu kunnur, bæði af ritum sínum og tveimur heimsóknum hingað til lands. Hin miklu orðabókarstörf hans, sem hafa aflað honum frægðar víðs veg- ar um lönd, hafa ekki slökkt áhuga hans á íslenzkum rímum, en þeim kynntist hann á ungum aldri, fyrir sextíu árum. Arið 1908 gaf hann út Skotlandsrímur sr. Einars Guðmundssonar í vandaðri út- gáfu, og hafði þá búið sig betur undir það verk en mörgum er títt, því að hann hsfði þá lesið allt sem til var á prenti af íslenzkum rímum, og síðan mun hann hafa haldið því við og lesið allt sem út kom af því tagi. Enda bera inngangar hí.ns að Sýnisbókinni því vitni að hann er einn af fróðustu mönnurn um íslenzk- an rímnakveðskap, ekki aðeins meðal erlendra fræðimanna, heldur engu síður þótt íslendingar séu meðtaldir. Sýnisbókinni er skipt í þrjú allstór bindi; í hinu fyrsta er úrval úr rímum frá upphafi fram að 1550, í öðru rímur frá 1550 til 1800, í þriðja rímur frá 19. öld. Hverju bindi fylgir rækilegur inn- gangur um rímnakveðskap þess tímabils sem bindið nær yfir. Sá háttur er á hafð- ur að í hverju bindi eru fyrst kaflar úr rímunum sjálfum, en aftan við úrval úr mansöngvum. Fæst með því nokkurt yfirlit um yrkisefni rímnaskálda í man- söngvum og breytingarnar sem á þeim verða eftir því sem tímar líða. En í man- söngvunum eru rímnaskáldin frumleg- ust, og þar er oft mestan skáldskap að finna, einkum í yngri rímum. Meginið af efni bókarinnar er tekið úr prentuðum rímum, eins og eðlilegt er. 1 öðru bindi er þó nálega helmingur text- ans úr óprentuðum rímum, í þriðja bindi miklu minna, en í fyrsta bindi aðeins nokkur erindi. Þetta er í samræmi við það að tiltölulega minnst er prentað af rímum sumra helztu skálda frá þeim tíma sem annað bindi fjallar um, en mest af liinum elztu rímum. í fyrsta bindi eru sýnishorn úr flestum rimunum í Rímnasafni Finns Jónssonar, svo og úr nokkrum öðrum. í öðru bindi er valið úr færri rímnaflokkum, en meginið af efn- inu tekið úr rímum þeirra skálda sem hæst bar. Mikill fengur er að því að fá sýnishorn úr óprentuðum rímum höfuð- skálda 16. og 17. aldar, þeirra Magnúsar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.