Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 19

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 19
HEIMA OG HEIMAN 9 Listkúgun í Reykjavík eru nú á almannafæri bronsmyndir af fjórum lafafrökk- um þeirrar tegundar sem danir kalla „diplómat“ en kanar „prins Albert“: - einkennisbúníngur kaupmanna og faktora, og reyndar alskonar brodd- borgara, á tímum Viktoríu drotníngar. Uppá þessa prinsalberta hefur síðan verið tylt hausunum af Jónasi Hallgrímssyni, Jóni Sigurðssyni, Hannesi Hafstein og Kristjáni Vilhjálmssyni. Nú flýgur fyrir að í ráði sé að setja upp fimta prinsalbertinn í Reykjavík, með ímynduðum haus af Skúla fógeta uppaf. Þessi list er gerð eftir pöntun frá þeim sem ráða bænum, því auðvitað dettur aungum listamanni í hug að búa til prins- albertfrakka úr bronsi, nema til að þægjast nógu heimskum viðskifta- vinum. Þessi lafafrakkahryllíngur er sumsé hinn viðurkendi, opinberi og fyrirskipaði listasmekkur sem íslensk yfirvöld vilja berja inní þjóðina á tuttugustu öld. Fyrir nokkrum árum stofnuðu smekkmenn í Reykjavík félag til að prýða bæinn, meðal annars til að koma upp listaverkum á almannafæri. Gegn þessu félagi vaktist hreyfíng þeirra manna sem vilja efla lista- smekk stjórnarvaldanna, þann smekk sem telur prinsalbertfrakkann há- tind listrænnar tjáníngar. Einn þáttur í baráttu lafafrakkasinna gegn Fegrunarfélaginu var sá, er einn forkólfur þeirra tók sér fyrir hendur á björtum júnínóttum að laumast inní garð Asmundar Sveinssonar mynd- höggvara, meðan listamaðurinn var fjarri, og ljósmynda afturhluta á líkneskjum þeim er standa í garðinum. Myndirnar prentaði kauði síðan í blaði sem hann gaf út, og þá stefnuskrá hafði að afhenda útlendíngum sjálfstæði íslands og landsréttindi, og fylgdi þar tilheyrilegt fimbulfamb um listamenn og listir af hugarfari og með orðbragði þeirra manna sem eiga sitt föðurland á alveg sérstökum stað. Mentaðir útlendíngar sem koma á „fín“ heimili í Reykjavík segja að höfuðborg íslands sé sú borg þar sem gróssérarnir hafi smákaupmanna- smekk. Ég held þetta sé of mikið hól um flesta okkar grósséra — þó það eigi að vera hið gagnstæða. Eitt er víst, þeir sem eiga bæinn hafa feingið því ráðið að enn hefur ekki verið komið upp listaverki á almannafæri í Reykjavík á þeim hálfum öðrum áratug næstliðnum, sem einna mestur fjárhagslegur uppgángur hefur orðið í landinu. Ég gleymi því seint er ég skrifaði grein í miðjum peníngastraumi stríðsáranna, um hve æskilegt væri að reisa hið mikla snildaiverk Einars Jónssonar, Útilegumanninn,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.