Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Side 24
14
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
arnir voru búnir að gleyma hinni fornu dæmisögu úr barnabókinni um
manninn sem stóð útá torgi og æpti í sífellu „úlfur, úlfur“: þessum manni
tókst að vísu að gera marga hrædda í fyrstu; en hann hélt áfram að æpa
þángað til allir voru hættir að vera hræddir aftur, sumir voru meira að
segja farnir að hlæa að honum, en flestir geingu framhjá og yptu aðeins
öxlum með ógeði. Altaf átti eystrihelmíngur Evrópu, einkanlega Ráð-
stjórnarríki, að vera kominn á fremsta hlunn að gera innrás í vestra
helmínginn; síðan er því fólki sem býr austan einhverrar tiltekinnar
stjórnmálalínu, (sem auðvítað hvergi er til,) hótað því að það skuli alt-
saman verða drepið, því skuli verða gereytt einsog þessir þokkapiltar
komast að orði. Þessum stríðsboðskap úr fjarlægri heimsálfu hefur fylgt
sú áskorun til evrópumanna að það sé betra að allri mannabygð í Ev-
rópu sé jafnað við jörðu, og vestræn siðmenníng líði undir lok, en vin-
samlegu samkomulagi sé náð við sósíalistaríkin um frið í heiminum.
Ég ætla að draga hér fram fróðlegt dæmi af því, hvað stríðsæsínga-
menn gátu leyft sér að bera fram í kalda stríðinu hér í Evrópu fyrir fám
árum, meðan þeir enn skákuðu í því skjóli að ótti evrópumanna við
grýlur þeirra væri allri velsæmistilfinníngu sterkari. Ég tek dæmið úr
okkar kæra gamla vinlandi Danmörku, en danska þjóðin hefur orðið að
þola harða sókn af hendi stríðsæsíngasinna. Þessari friðsömu þjóð, sem
ekki á í útistöðum við nokkra aðra þjóð, hafa stríðsæsíngamenn nú hald-
ið einsog mús undir fjalarketti árum saman; — en friðmenn eru jafnan
öðrum mönnum sterkari, og þannig hafa danir farið með sigur af hólmi
í baráttunni við stríðsöflin, sigur í höfuðatriðum, — að minnsta kosti
stærri sigur en vér hér á íslandi getum státað áf. vér sem höfum á friðar-
tímum gert land vort að svaði erlendra soldáta.
Ógnaræði stríðsaflanna gegn almenníngi í Danmörku endurspeglast
einna ljósast í tveim „dagskipunum" — einsog komist er að orði nú á
dögum — sem gefnar voru út á velmaktárdögum kalda stríðsins, þegar
gereyðíngardraumar stjórnmálamanna voru hvað glæsilegastir og am-
rískum einokunarhríngum og umbjóðendum þeirra hafði í raun réttri
tekist að telja Evrópu trú um að hin lángþráða atómstyrjöld á hendur
sósíalistiskum þjóðum væri „just round the corner“. Önnur þessi „dag-
skipun“ var gefin út í dagblöðum í Kaupmannahöfn vorið 1950 af Christ-
ensen nokkrum lækni og sérfræðingi í atómstríði, en hann var að embætti
opinber ráðunautur svonefndra borgaralegra varna í landinu. Þetta skjal