Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 38

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 38
28 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR Dolores hyggju kvenna í bernsku en önnur börn. Rithöíundurinn Arturo Barea, sem ritað hefur bók um García Lorca, getur þess til, að hér megi að nokkru finna skýringu þess, að beztu leikrit García Lorca fjalla öll um konur og honum er gjarnt að láta konur tjá tilfinningalif sjálfs sín. Á bernskuheimili García Lorca var meðal annarra hjúa gömul barnfóstra að nafni Dolores. Hún sat oft framan við arininn með börnin hjá sér og söng fyrir þau þjóðkvæði og sagnadansa eða sagði þeim sögur, en af þeim á Andalúsía óvenju gilda sjóði. Er sagt, að Federico hafi verið farinn að raula þjóðlögin, þegar hann var eins árs, eða tveimur árum áður en hann fór að tala. Bróðir hans, Francisco, segir svo frá, að Dolores sé fyrirmyndin að griðkonun- um í leikritum García Lorca, „Blóðbrullaupi“ og „Spunakonunni, Dona Rosita“. En einnig í öðrum leikritum hans ýmsum er griðkona ein aðal- persónan, og er skyldleiki þeirra við Dolores ótvíræður, þótt nokkuð séu þær með öðru sniði. Ekki er ósennilegt, að minningin um sögur og söngva Dolores gömlu hafi átt sinn þátt í því, að García Lorca gerðist síðar ötull þjóðsagnasafnari, varð hámenntaður í spænskri þjóð-tónlist og leitaði í ljóðagerð fyrirmynda bæði um hætti og efni í sagnadönsum og þjóðkvæðum Andalúsíu. Að minnsta kosti verður ekki gengið fram- hjá þessari gömlu griðkonu, þegar rakin er ævisaga García Lorca og verk hans rannsökuð. Strax á barnsaldri varð áhuga vart hjá García Lorca fyrir leikstarfsemi. Hann samdi smásjónleiki og lék þá undir berum himni fyrir börnin í þorpinu. Smám saman varð þetta fönd- ur að hálfgerðri áráttu. Hann tók heimilið einatt til umráða og gerði að leikhúsi, en heimamenn að leikurum. Hann tíndi fram fatnað móður sinnar, færði systkini sín eða þjónustustúlkurnar í skrúðann, og síðan hófst leikurinn. Mesta ánægju hafði hann af messuleikum. Brá hann sér þá í prestslíki, en heimilisfólki í gervi kirkjugesta, og síðan hófst há- messa með tilhlýðilegri viðhöfn. Undir prédikun varð söfnuðurinn að hágráta. Og menn komust ekki upp með neinn leikaraskap. í messulok urðu allir að sanna með tárum á vanga, að engin brögð hefðu verið í tafli! Þægust hjálp við þessar sýningar var fóstran dygga, Dolores. i , Meðan Federico var enn á barnsaldri, fluttust foreldr- I Granada ar hans úr sveitinni og settust að í Granada. Keypti faðir hans stórhýsi í hjarta borgarinnar, en átti þó sveitasetrið áfram. Barnaleikir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.