Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Blaðsíða 43
UM GARCÍA LORCA
33
Fyrsta bókin
hvaða blaði hún birtist. En enginn vaíi er á, að greinin hefur verið full
aðdáunar á hinum mikla snillingi og rituð vegna þess, að García Lorca
hefur kennt andlegs skyldleika við Zorilla, sem þá var látinn fyrir tæpum
aldarfjórðungi. Báðir voru andalúsíubúar, báðir Ijóðskáld og leikrita-
höfundar í sterkum tengslum við fortíðina, hjá báðum rík þjóðernisvit-
und og átthagatryggð. En kannski hefur fáa grunað, þegar greinin birt-
ist, að hinn 18 ára gamli höfundur ætti eftir að rísa eins hátt í spænskum
bókmenntum þessarar aldar og Zorilla á næstliðinni öld.
Þótt García Lorca fengist bæði við tónlist og málaralist á þessum ár-
um, varði hann þó mestum tíma í lestur bókmennta og til að yrkja — og
þarf nú ekki að undrast Iengur, þótt hægt miðaði með lögspekina!
Árið 1917 tók García Lorca þátt í ferðalagi skóla-
sveina um alla Kastilíu undir fararstjórn kennara
síns, Martín Domínguez Berruete, prófessors í listasögu. För þessi varð
honum bæði til gleði og mikils gagns. Sagðist honum svo frá síðar, að
þá hefði hann fyrst skilið, hvað það var að vera spánverji, skynjað feg-
urð ættjarðar sinnar og auðlegð lífsins, sem hún elur við skaut sér, og
fundið tengsl sín við hvort tveggja. Ávöxtur þessa ferðalags varð m. a.
lítið kver, gefið út í Madrid 1918, og var það fyrsta bók hans. Nefndist
hún „Impressjónir og landslag“. Þetta voru Ijóðrænar lausmálsskissur,
náttúrumyndir og stemningar með mótívum víðs vegar að úr Kastilíu.
García Lorca var sískapandi á þessum árum, og urðu skólaljóðin frá
Granada uppistaða í fyrstu Ijóðabók hans. 011 kvæðin í þeirri bók eru
ársett, flest mánaðarsett og nokkur dagsett. Er skemmtilegt að athuga,
hve frjósamt skáld hann hefur verið. Eitt kvæðið er dagsett 25. júlí 1918
og er 4síða í skírnisbroti, annað dagsett 3. ágúst s. á. og 2^/4 síða,
þriðja dagsett 7. ágúst og 3 síður — eða 3 kvæði á 13 dögum og ekki
minna en 10 síður samtals! Alls eru í fyrstu ljóðabók hans 12 kvæði frá
1918 og samtals 30 síður — eða að meðaltali eitt ljóð á mánuði og 2^/2
síða hvert — og er þó aðeins birt strangt úrval þess, sem ort var! Auð-
vitað voru þessi Ijóð flest með viðvaningsbrag, en sum þeirra munu þó
seint fyrnast.
García Lorca eignaðist marga vildarvini í hópi fullorðinna fræði- og
listamanna í Granada, og einnig safnaðist fljótlega um hann hópur ungs
listelsks fólks. Var það vndi hans að lesa vinum sínum Ijóð sín eða
syngja fyrir þá spænsk þjóðlög og leika undir á gítar eða píanó. Hann
Tímaril Máls og menningar, 1. h. 1954 3