Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 85

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Page 85
VOLAÐS VERA 7S Og nú leika þeir fyrir hann opus 35 eftir Richard Strauss: „Don Quixote“. Hann hlustar. Honum lætur vel að hlusta. Takið gleymist. Það er kannske öðru fremur af því hann liggur kyrr. Og hlustar. Maður getur gleymt kvölum við að heyra tónlist. Endurminning getur á sama hátt orðið sterkari hverri þjáningu.— En um það bil sem hinztu ómar tón- verksins um farandriddarann hugumstóra ná eyrum listamannsins í auðninni, skynjar hann það, að fyrir utan gluggann er stillilogn. Eða hafa eyru hans sljófgazt við vopnagný kappans? Nei. Það er komið logn. Ekkert hljóð heyrist lengur. Þrátt fyrir kuldaskjálfta gerir maðurinn tilraun til að rísa upp við dogg. Hann teygir sig fram á borð undir gluggakistu, kreppir dofna fingur og mynnist við hélaðan gluggann. Hann andar hlýju á glerið. Það kemur agnarsmátt gat, og hann skyggnist út. Og þar lítur hann loksins þá sjón, sem hann hefur beðið eftir síðan hann kom á þennan stað: Hvít dalslétta fram undan í silfurskini tungls- og blikandi stjarna. Stillilogn. Og upp af sléttunni fjallið þar sem það rís, jökulhvítt, ekki lengur eins og ógnþrungin holskefla, heldur tigið og voldugt, bústaður þeirrar fegurðar, sem hann hefur svo lengi þráð að mega tjá. Hann kennir til í öllum líkamanum, hverri einustu taug; og í sálinni. Nú vildi hann vera heill heilsu og geta málað, ekki skugga, heldur ljós, tunglsljós, og fjall, og himin með stjörnum. En svona er það: Þegar viljinn er fyrir hendi kemur alltaf eitthvað til þess að grípa fram fyrir hendur manns. Það er ýmist kuldi landsins eða fólksins. Ýmist eru hlutir ógnþrungnir ellegar tiginbornir ofar mannlegum skilningi. Einnig hvort tveggja. Og listamaðurinn skreiðist aftur niður undir, lokar aug- unum og dregur upp yfir höfuð; án þess að vita að fætur hans standa fram undan sænginni. Hann finnur það ekki. Þeir eru kaldir; eins og á manni sem hefur orðið úti. Reykjavík, apríl 1951.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.