Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Side 96

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1954, Side 96
86 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR annars vegar og þess sem við hugsum og gerum hins vegar, er orðið geigvænlegt. Hverju er um að kenna? Mér skilst að það stafi að ein- hverju leyti af því, að eldri kynslóðinni var ofviða að skilja, að til þess að íslenzk menning gæti lifað í börnum þeirra, þurfti hún að taka miklum breytingum, — laga sig að þeim straumhvörfum, sem hér hafa orðið á síðustu áratugum. Nú er svo komið, að íslenzk menning er orðin eins konar forngripur, sérkennilegur að vísu og mikils virði sem slíkur, en hún er ekki lengur það lifandi afl, sem tengir þjóðina saman og beinir henni veg til dáða. Menning er alltaf alvarlegs eðlis, því að hún er lífæð þjóðar. Hún er meira en skemmtilegt fræðagrúsk, kvæðalestur og tónlistardýrkun þeirra, sem um helgar vilja varpa af sér áhyggjum virkra daga. Hún er hluti af manninum sjálfum, gegnum hana skynjar hann allt sem er og verður, sitt eigið líf. En menning er einnig skemmtileg, því að í henni finnum við sjálfa okkur, í henni svífur andi okkar hæst. Það er því vissulega ekki hughreystandi að heyra fjöldann allan af ungu fólki segja um þá stofnun, sem mest hefur á oddinum varðveizlu íslenzkrar menningar: IJtvarpið er of þungt, leiðinlegt. Ásökum ekki æskuna, vissulega vill hún finna sjálfa sig og skynja tilveru sína eins og hún hefur viljað á öllum tímum. Ef það sem íslenzkir menntafrömuðir bjóða henni, væri henni hjálp í þessum efnum, myndi hún ekki kvarta. Þeir geta hins vegar grátið þá firru sína að bjóða henni heim, sem ólíft er í. Er ég þó ekki að seilast um hurð til lokunnar? Er menningarupp- lausnin ekki einnig af öðrum rótum runnin? Getur siðleysi leitt af sér menningu? Getur það jafnvel haldið henni í horfinu? Mér er nærri að halda, að menning okkar sé að fölna, vegna þess að íslendingar hafa sviki-ð sjálfa sig, vegna þess að ástin á landinu, ástin á þjóðinni er sett skör lægra en ástin á gullinu. Ottinn um að íslenzk menning sé að fara í hundana er því sannarlega raunhæfur. En þorri manna misskilur eðli meinsemdanna. Margir halda, að við verðum að kappkosta að halda stefnunni, fá æskulýðinn til að tileinka sér sjónarmið og h'fsskoðanir feðranna, hvað sem það kostar. Þeim er líkt farið og manni, sem stígur á bak gæðingi, en þorir aðeins að láta liann fara fetið af ótta við að missa vald á honum. List góðs knapa er aftur á móti sú að leyfa fararskjótanum að fara á kost- um, en vera þó alltaf herra hans. íslenzkir skólamenn þora ekki að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.