Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1956, Page 15
NÓBELSHÁTÍÐIN í stóra strætisvagna; er nú ekið til ráðhúss borgarinnar, en þar býður nóbelsstofnunin til veizlu. Ráðhúsið er trúlega víðkunnasta bygging Stokk- hóbnsborgar, reist á árunum 1911—- 1923 úr dumbrauðuin, handhöggnuin tígulsteini og úr einu horninu rís mik- ill, fagurlagaður turn. Veizlan er hald- in í tveimur aðalsölum ráðhússins, Bláa skálanum (sem raunar er alls ekki blár en átti að vera það) og Gullna salnum. Blái skálinn er eins- konar húsagarður, yfirbyggður, og nær upp að þaki ráðhússins, en uppi á miðjum vegg eru dyrnar inn í Gullna salinn og er gengið upp miklar tröppur, en svalir eru á endilöngum veggnum. í Gullna salnum eru veggir allir þaktir mósaík með táknmyndum og atburðamyndum úr sögu Svíþjóð- ar, en grunnurinn er gullinn og Ijóm- ar í bjarmanum frá flöktandi kerta- ljósum. Eftir endilöngum sal er að þessu sinni mikið langborð og 19 þverborð út frá því, og er næsta þröngt setinn bekkurinn; gestirnir eru alls 778 talsiris. Við langborðið sitja konungshj ónin, nóbelsverðlaunamenn og annað mannvirðingafólk. Halldór hefur að sessunautum Margréti prins- essu og frú Erlander, konu sænska forsætisráðherrans, en hjá Auði sitja Wilhelin prins og du Vigneaud, verð- launamaðurinn í efnafræði. Borðhaldið er virðulegt og kurteis- legt í samræmi við langa erfðavenju og enginn óhóflegur íburður í veit- ingum; það er mælt fyrir minni kon- ungs og skálað fyrir honum, einnig fyrir minni Nobels og verðlauna- manna í ár; það er flutt tónlist sem tengd er heiðursgestunum: allt í einu hljóma tvö íslenzk þjóðlög, Vinaspeg- ill og Ég veit eina baugalínu; einnig kemur stúdentakór og syngur. Allt er þetta formfast og hátíðlegt, en það er ekki fyrr en borðhaldinu er lokið og kaffi býðst að mennsk og einlæg rödd hljómar í þessu samsæti: nóbels- verðlaunaskáldið Halldór Kiljan Lax- ness flytur ræðu sína. Á samri stundu er allt tildrið horfið, allur þessi ytri virðuleiki, og í staðinn hljómar okk- ur boðskapur um manngildi og mann- úð. Þetta er fögur, óbrotin ræða og áhrifavald hennar hlýtur að marg- faldast á þessum stað, þar sem hin ytri verðleikatákn virtust skipa önd- vegi; hún er þökkuð með áköfu lófa- taki. Síðan flytja aðrir nóbelsverð- launamenn ávörp með kurteisissniði. Að borðhaldi loknu ganga gestir út á svalirnar fyrir utan Gullna salinn, en þá er Blái skáhnn fyrir neðan orð- inn fullur af stúdentum sem hylla verðlaunahafana með ræðu og söng og fánakveðju. Síðan slást stúdent- arnir í hópinn og það er stiginn dans af miklu fjöri fram yfir miðnætti. Um nóltina, þegar ég var orðinn einn í hótelherbergi mínu, fór mér líkt og Halldór lýsti í ræðu sinni, mér varð ekki svefnsamt, hugsanirnar héldu 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.