Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Qupperneq 5

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Qupperneq 5
Sókn hafin að nýju Þann 30. apríl s.l. undirrituðu liandhafar forsetavalds íulla sakaruppgjöf til handa þeim 20 mönnum, er dæmdir voru hæði í undirrétti og hæstarétti vegna þátttöku í atburðunum við Alþingishúsið 29. marz 1949, er Alþingi samþykkti inngöngu Islands í Atlantshafsbandalagið. Eftir átta ár er nú unninn fullur sigur í þessu máli, og Tímaritið( vill af því tilefni úska þeim mönnum til hamingju, er öll þessi ár hafa orðið að þola hina ranglátu dóma, en nú hafa hlotið fulla uppreisn, og einnig öllum þeim þúsundum Islend- inga, sem studdu með undirskrift sinni og á annan hátt kröfuna um sakaruppgjöf. Allt frá því Islendingar fengu dómsvald að fullu í sínar hendur, hafa engir dómar hrotið jafn ótvírætt í bág við réttarvitund þjóðarinnar sem þeir, er nú hafa loks verið ógiltir, og þeirra mun lengi verða minnst sem varnaðar gegn því, að dómstólar landsins láti glepjast af hamförum púlitísks ofstækis. Það mundi hafa þótt kaldhæðnisleg hrakspá, ef það hefði verið sagt fyrir við vöggu íslenzka lýðveldisins 1944, að eftir fimm ár rnundu íslendingar, þjóð, sem með naumind- um slapp lifandi úr sex alda nýlendukúgun, vera orðinn aðili að hernaðarbandalagi allra örgustu nýlendukúgara heimsins. 1949 er íslenzku þjóðinni jafnfjarri skapi og nokkru sinni fyrr að blanda sér í átök stórvelda. Hlutleysisstefnan var enn sem fyrr hin eina hugsanlega stefna Islands, og þjóðin var því sem steini lostin, þegar flokkar, er annars höfðu meirihlutafylgi að baki sér, sneru við blaðinu í þessu máli fyrirvaralaust að kalla og hófu hatramman áróður fyrir því, að hin óvopnaða og friðsama þjóð vor gerðist aðili að stofnun hernaðarblakkar hinna herskáustu og voldugustu ríkja. I skjóli þeirrar múg- sefjunar, er í bili tókst að skapa meðal nokkurs hluta af fylgjendum A-bandalagsflokk- anna, var málinu flaustrað gegnum Alþingi og þátttaka íslands samþykkt að þjóðinni fornspurðri. Og jafnframt var ætlunin að nota tækifærið til að brjóta á bak aftur þau öfl, er héldu tryggð við hefðbundna stefnu og rótgróinn hugsunarhátt Islendinga. Það var varpað táragassprengjum að friðsömum almenningi fyrir framan Alþingishúsið, einnig konum og börnum, og fólk var barið niður með kylfum. Síðan tóku við réttar- höld, ekki yfir þeim, sem svikið höfðu málstað Islands, ekki yfir þeim, sem sekir voru um ofbeldisárásir og meiðingar, heldur hinum, sem stóðu vörð um hefðbundna stefnu íslands, yfir þeim, er fyrir árásunum urðu. Til allrar hamingju var almenningur fljótur að átta sig. Ofbeldisárásirnar voru fordæmdar. Það sannaðist óvefengjanlega nokkrum dög- um eftir athurðina við Alþingishúsið, en þá var haldinn geysifjölmennur útifundur í Reykjavfk til að mótmæla inngöngunni í A-bandalagið og öllum aðförum stjórnmála- flokka þeirra, er heittu sér fyrir henni. Það varð því miklu minna úr dómsofsóknunum en til var stofnað. Þó voru tveir tugir manna dæmdir í fangelsisvist allt að tveim árum og missi mikilvægra mannréttinda. En þjóðin hefur aldrei viðurkennt réttmæti þessara dóma, og hreyfingin fyrir því að fá þá ógilta er víðtækasta mótmælahreyfing, sem um getur á íslandi. Yfir 27 þúsund manns úr öllum stjórnmálaflokkum undirrituðu kröfuna um sakaruppgjöf. Samt sem áður hefur það tekið átta ár að vinna fullan sigur í þessu máli, og um leið og vér fögnum þessum mikilvæga sigri, minnumst vér þess, að enn 83
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.