Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Síða 16

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Síða 16
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR algengt að börn og unglingar séu sett til læri í píanóglamri og orgeljarmi eða andarteppublæstri á Iúðra, hvort sem þau hafa nokkra hæfileika eða langanir í þær áttir eða ekki. Mín saga er ljót, og þó hafa víst þúsundir manna á þessu landi frá svipuð- um písluin að segja. Píanólexíur hinumegin við þilið hjá mér á Stýrimanna- stíg, vikuin saman sönru lexíurnar. Þá bilaðist ég svo gersamlega, að ég rauk í að fá mér lífsförunaut. Píanólexiur yfir mér og beint undir rnér og skáhallt undir mér á Hallveigarstíg, stundum allar í gangi í einu, og húsið mjög hljóðbært. Þá missti ég oft stjórn á mér og flúði út í holt til þess að forða Margréti frá að borga á mig á vitlausrahæli. I Suðurgötu píndur mikinn part úr ári með píanóspilalátum eins ósvífins gæa, sem við tókum inn í íbúð okkar úr geymslustíu úti í bæ, með því heiti, að hann spilaði ekki á píanóið, því að herbergi hans var út úr sama holi og vistarverur okkar og húsið hljóðbært eins og hamraveggir. Sá músikiddjót launaði lausnina úr stíunni með því að glamra á píanóið, hvenær sem hon- um sýndist og stundum fram á nætur, og við laussvæf. Svo kom unnusta honum við hlið, svo gifting, og hún flutti inn í herbergið til hans, og raf- magnsreikningurinn steig úr 20 krónum upp í rúmar 70 krónur, allt án þess að við værum að spurð eða fengjum betaling fyrir. Þetta var þó-nokkur skildingur árið 1943, og Við þá ekki orðin rík. Þarna sérðu, hvort músik göfgar ekki. Hitler elskaði músik. Og ég þekki músikelskendur og kompón- ista, á hverra loforðum er ekki meira mark takandi en velli spóans. Svo fluttust píslirnar hingað suður á Hringbraut 45. Píanólexíur beint undir mér og radíófónn á stærð við hundakofann á Hala, píanóspilirí á ská undir mér, þar að auki lúðraandarteppa, sem þó er skást af þessu, því að mér heyrist alltaf blásarinn vera að kafna, og ég er að telja mér trú um í minni alkunnu einfeldni, að þó að hann hafi náð andanum í dag, þá hljóti hann að blása honum út fyrir fullt og allt á morgun. Fyrir skömmu var sett í gang nýtt píningartæki hér í nágrenninu. Það var gerður skautaís á íþróttavellinum, og nú til dags er ekki hægt að fara á skautum nema undir háöskrandi músik, og nú var heldur en ekki skrúfað frá, og á endilangri húshliðinni buldi þvílíkur músikglaumur, hljómandi eins og hann kæmi úr tómri bensíntunnu, að klukkutímum saman, dag eftir dag, var í sannleika sagt ekki vært sunnanmegin í húsinu. Ég flúði hvað eftir ann- 94
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.