Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 18
TIMARIT MALS OG MENNINGAR
ettinum, kantötunni, sinfoníunni, etýðunni og fleiri svipuðum hundakúnst-
um.
Það verður eitthvað að gera. Þessi linnulausi og alls staðar verandi músik-
beljandi er að lama mannfólkið andlega og gera það óhæft til að beita hugs-
uninni og útilokar það þar ineð frá að geta skilið lífið og snúizt skynsam-
lega við vandamálum líðandi stundar, auk þeirra skemmdarverka, sem hann
vinnur á innýflum og taugum.
Það sem er uggvænlegast við þessa hnignun, er sá sannleikur, að í raun og
veru hefur enginn skemmtun af þessum hávaða, nema tiltölulega fáir músik-
menn, svo kallaðir, en það er oftastnær fólk, sem hætti að þroskast á vits-
munum á afdjöflunaraldri. Fyrir hinum er það glymjandinn, sem þeir verða
að hafa í eyrunum, þetta ópíum í hljóðum, sem músikinstrúmentin eru búin
að venja það á, með hjálp frá mótorskellum, bílaskarki og flugvéladrunum,
svo að þessu fólki er þögnin orðin hræðileg, óþolandi. Þar með er mann-
eskjan slitin úr samhengi við djúp lífsins og andlega eyðileggingin fullkomn-
uð. í þessum fjölda eru margir, sem þykjast hafa gaman af músik, bara af
snobbiríi. Þeir halda að það sé fínt að vera músikalskur. En þeim virðist
aldrei hafa dottið í hug, að það væri fínt að geta hugsað.
Mín músik er þögnin og söngur snjótittlingsins á trjánum í garðinum hans
Jakobs Thor. Eg hef aldrei verið svo vel settur í lífinu að eiga hríslu handa
snjótittlingi til að syngja í. Ég hef orðið að standa fyrir utan annarra
manna garða til að njóta þeirrar skemmtunar. Nú vill Fríða eyðileggja þetta
fyrir mér, eins og vant er, og segir að snjótittlingar syngi aldrei í trjám,
heldur á steinum og klöppum. En Finnur, sem allt veit um fugla, nema tal
hrafnsins, segir, að það komi fyrir, að snjótittlingar sitji í trjám og þeir geti
alveg eins sungið í þeim.
Það verður eitthvað að gera í þessu, Maja mín! Mér hefur helzt dottið í
hug, hvort snjallir hugvitsmenn gætu ekki fundið upp nokkurs konar bólu-
efni, ef það er ekki til, og síðan samþykkti alþingi lög, sem skyldaði alla til
að láta bótusetja sig gegn músik. Dygði ein bólusetning ekki, mætti endur-
taka innspýtinguna, ef það kæmi í ljós, að náttúra til músikhávaða eða
músikinstrúmennta væri farin að brölta á kreik í áður bólusettum kroppum.
En ég er lýðræðisvinur og vil ekki láta þetta verða að lögum nema allir
flokkar samþykki þau. Það leynist sem sé lúmskur einræðispúki í meirihluta-
96