Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 22
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ég.“ Jafnvel þó þessi ómaklegu ummæli
Chaplíns séu tæpast sannmæli, þá lýsa þau
þrátt fyrir allt þeim kala, sem hann bar til
tengdaföður síns bæði fyrir tómlæti það,
sem O’Neill sýndi dóttur sinni og fjandskap
þann, sem hann sýndi honum.
Um hjónaband Carlottu Monterey og
O’Neills mætti skrifa langt mál, en þau fáu
orð, sem hér fara á eftir verða að nægja að
svo stöddu. Margt bendir til þess, að sam-
búð þeirra hafi ekki verið sérlega farsæl
síðustu æviár O’Neills, en þó fátt betur en
þær ótal árangurslausu tilraunir, sem hann
gerði til þess að láta loka konu sína inni á
geðveikrahæli, en svo illa tókst til, að
þessar ítrekuðu tilraunir hans strönduðu
ávallt á því, að sérfræðingar geðveikrahæl-
anna voru honum ekki samdóma um geð-
heilsu konunnar.
Það er deginum Ijósara, að þessir rauna-
legu þættir úr einkalífi höfundar, sem hér
liefur verið drepið á, gætu orðið áhrifarík
atriði í harmleik, en áður en skýrt verður
nánar frá fleiri átakanlegum staðreyndum
úr ævi O’Neills, skulum við ræða önnur
mál.
Þegar leikbókmenntasaga 20. aldarinnar
verður skráð, mun Eugene O’Neill áreiðan-
lega skipa veglegan sess meðal betri skálda
vorra daga. Hvaða mælikvarði, sem lagður
verður á listgildi verka hans, verður sú saga
aldrei að fullu sögð, nema að hans sé getið
oft og ítarlega.
í landi, þar sem ættfræði er svo mjög í
hávegum höfð, er ef til vill ekki úr vegi að
byrja á því að rekja örlítið ætt höfundar.
Faðir Eugenes, James O’Neill, fæddist á Ir-
landi 1847, og fluttist með foreldrum sínum
til Bandaríkjanna meðan hann var enn á
barnsaldri. Þegar í æsku varð hann svo
bergnuminn af leiklist, að hann ákvað að
helga henni alla orku sína og ástundun upp
frá því. Árið 1867 lék hann fyrsta hlutverk
sitt á sviði þjóðleikhússins í Cincinnati
rúmlega tvítugur. Það átti fyrir honum að
liggja að verða einn af ástsælustu leikurum
samtíðar sinnar. Hann túlkaði tilfinningar
og hugsanir ýmissa ólíkra leikpersóna úr
verkum Shakespeares, allt frá Romeó til
Ilamlets um nokkurra ára skeið á leiksýn-
ingum víða í Bandaríkjunum, en þótti síðar
gera hlutverki Edmond Dantés í sjónleik
byggðum á skáldsögu Dumas svo frábær
skil, að hann varð þegar í stað ímynd
dirfsku og drenglyndis í augum allrar þjóð-
arinnar. Þessi nýstárlega riddarasaga, sem
ól svo mjög á hetjudýrkun almennings, átti
svo einstökum vinsældum að fagna, að
James O’Neill lék ekki annað hlutverk
næstu 15 ár. Svo mikið er víst, að enginn
samtíðarleikari komst í hálfkvisti við hann
er laun og lýðhylli varðar. Þótt hann fylli
að vísu flokk þeirra gæfumanna, sem finna
köllun sína á unga aldri, taldi samt sonur
hans hann vera raunalegasta dæmið um
skelfingu veraldargengisins, sem hann
þekkti. í stað þess að velja sér verkefni, sem
vænleg voru til fullkomnunar og þroska í
listgrein sinni, beið James O’Neill tjón á
sálu sinni vegna ágirndar.
Móðir Eugenes O’Neills, Ellen Quinlan,
var kaþólsk kona af írskum ættum. Hún var
fædd í New Haven, en ólst upp í Mið-
ríkjunum, þangað sem foreldrar hennar
höfðu flutzt, þegar hún var barn. Menntun
sína fékk hún í nunnuklaustri í South
Bend, Indiana. Þegar hún giftist James
O’Neill, sem hún hafði kynnzt þar, komst
hún um leið í kynni við líf og lýð, er
hún sökum skapgerðar sinnar og upp-
eldis var frábitin í upphafi, og gat í raun-
inni aldrei sætt sig við né skilið til fulls.
Ilún fylgdi manni sínum einlægt á leik-
ferðum hans landshornanna á milli, og
Eugene litli, sonur þeirra, átti ekkert heim-
ili fyrstu sjö ár ævi sinnar nema misjafn-
lega heimilisleg herbergi á gistihúsum, þar
sem iðulega var ekki gist nema um blánótt-
100