Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Page 54

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Page 54
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR slóðir fyrir 132 árum. Heinrich Heine fór í september og október 1824 fótgangandi um Harzfjöll og Thiiringen, og um þessa för skrifaði hann 1. bindi Ferðamynda — Die Harzreise. Þessa bók las ég í fyrsta skipti sumarið 1928 í lækjargili aust- ur á Sámsstöðum, nýskroppinn úr skóla, og 30 árum síðar man ég enn unað hins fyrsta lesturs. Ferðalangur einn, Karl Dörne að nafni, hitti Heine á þessari gönguför og lýsti honum á þessa leið: ,.Hann var 5 fet og 6 þumlungar á hæð, gat verið 25 eða 27 ára gamall, ljóshærður, blá- eygður, andlitið þokkafullt, grann- leitur, var í brúnum frakka, gulum buxum, teinóttu vesti með svartan trefil, græna húfu á höfði og bak- poka úr grænum vaxdúk.“ Hann var á leið frá Jena til Weimar og förinni var heitið á fund Goethes. Heine sendi Goethe bréfmiða, hvar á stóð: „Eg bið Yðar Hágöfgi að veita mér þá hamingju að mega standa frammi fyrir yður í nokkrar mínútur. Ég skal alls ekki verða yður til þyngsla, aðeins kyssa hönd yðar og fara síð- an.“ í dagbók Goethes standa þessi fábreyttu orð: „Heine frá Götting- en, 2. október 1824.“ Mörgum árum síðar sagði Heine frá þessum fundi. Hann var sveittur og vegmóður þeg- ar hann gekk fyrir hinn aldraða snilling, hafði búið sig undir mikla og gáfulega ræðu, en þegar hann stóð frammi fyrir þessum Seifi þýzkra bókmennta, féllust honurn orð og hann fékk aðeins stunið því upp, hve plómurnar í Weimar væru lost- ætar! Weimar var höfuðborg í einhverju minnsta smáríki Þýzkalands, og þjóðhöfðinginn Karl Agúst hlaut stórfurstanafnbót árið 1815. Árið 1775 ætlaði Goethe að fara til Ítalíu til langdvalar, en á leiðinni til Darm- stadt var hann eltur uppi af fnæsandi gæðingum Weimarfurstans, sem hað hann að setjast að í borg sinni, og þar lifði Goethe það sem eftir var ævinnar, en hann andaðist 1832 í hárri elli. Ef ég ætti að kjósa mér dvalarstað utan íslands, þá mundi ég velja mér Weimar. Það er eins og andinn hafi grópað þennan smábæ fangamarki sínu óafmáanlega. Þarna ríkir ljúfur unaður, sveitasæla, sem leitun er á í vorum vélræna heimi. Þegar maður rekur hausinn út um hótelgluggann á morgnana, þá er bæjartorgið morandi af sveitabændum, sem eru að selja kál, kartöflur, egg og hænsni, virðulegar troðjúgra kýr eru spenntar fyrir vagna, hest er varla að sjá. Lífið líð- ur áfram, hægt og háttbundið, í sama sniði og þegar Goethe og Schiller gengu hér um götur og ræddu hin torræðu vandamál fagur- fræðinnar. Ilmur af sveit og kúm. Skellinöðrur og djöfuldómur nútíma- hraðans hafa beygt hjá þessum kyrr- láta stað. Hér eru líka unnin kyrrlát 132
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.