Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 55

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Side 55
TIL FUNDAR VIÐ HEINE I WEIMAR fræðimannastörf. Weimar er útgáfu- stöð klassískra þýzkra bókmennta. Þar er m. a. unnið nú að nýrri heild- arútgáfu á ritum Goethes og Schillers og þar er miðstöð hinnar nýju út- gáfu á ritum Heines, fyrstu útgáf- unni, sem gerir lífsverki hans vís- indaleg skil. Enga menn hef ég öf- undað eins mikið og hina ungu fræðimenn, sem ég kynntist í Weim- ar, og áttu alla ævina eftir til þess að vinna að útgáfum hinna miklu and- ans meistara Þýzkalands. Þeir voru komnir hingað til Weimar úr austri og vestri, og hér sögðust þeir eiga eftir að bera beinin. A sunnudagskvöldið 7. október voru flestir menn Heineráðstefnunn- ar komnir, og við hristum okkur saman yfir bjór, sem var svo dásam- legur, að maður geymir bragð hans í munninum til æviloka. Ég settist við borð hjá tveimur vesturþýzkum prófessorum frá Hamborg, próf. Wolfheimer og próf. Vontin, og ungri stúlku er lagði stund á bók- menntir við Hamborgarháskóla. Mér leizt ljómandi vel á þessa ungu hnátu, en hún vakti aðallega eftirtekt mína með því, að hún skipti jafnan um hárgreiðslu á hverju kvöldi. Um daga var hár hennar fest í hnút, en á kvöldin var hún með slegið hár og lét það falla fram á vinstra brjóstið. Það er ekki af hégómaskap, að ég segi það, en mér var veitt töluverð athygli á þessari ráðstefnu, auðvitað ekki sjálfs mín vegna, heldur vegna þess, að ég var íslendingur. Þá varð ég í fyrsta skipti stoltur af Alþingi íslands. Úr vestri og austri var ég spurður, hvernig í ósköpunum á því stæði, að íslendingar hefðu þor til að senda ameríska herinn úr landi. Ég minnist þess ekki að ég hafi verið öfundaður fyrr af stórþjóðamönnum. Það var gaman að vera íslend- ingur í Weimar. Og ekki minnkaði virðing mín við það er ég dró upp úr tösku minni ljóð Jónasar Hall- grímssonar og sýndi mönnum Heine- þýðingar hans, ortar á elzta bragar- hætti norrænnar tungu. Þeir ætluðu varla að trúa sínum eigin augum, en ég minnti þá á, að þegar stórþjóðir Evrópu hefðu ekki getað mælt við drottin sinn nema á munkalatínu, hefðu íslendingar ort Hávamál og Sólarljóð. Já, það var gaman að vera íslendingur í Weimar. Þegar ég lít yfir gildaskálann sé ég menn frá mörgum þjóðum veraldar: hnellna Kínverja, horaðan japanskan prófessor og Heineþýðanda, ljótan og gáfulegan Englending, próf. Wil- liam Rose, einhvern fjölvísasta Heinerannsóknara vorra daga. Hann varð frægur á þessari ráðstefnu fyrir það, að hann gekk af einni bók- menntalegri þjóðsögu dauðri: sög- unni um það, að Heine hefði verið ástfanginn af Therese Heine frænku sinni og hefði ort til hennar ljóð Heimjararinnar. Ég hef aldrei verið 133
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.