Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Page 63

Tímarit Máls og menningar - 01.07.1957, Page 63
TIL FUNDAR VIÐ IIEINE I WEIMAR drap hann með eigin hendi 20 fanga á skrifstofu sinni. Að því búnu lagði hann á flótta í vesturátt og nú er hann á 10 þúsund marka eftirlaun- um í Vestur-Þýzkalandi. Við göngum út á sólbjartan völl- inn. Gaddavírinn á veggjum fanga- búðanna glitrar í sólskininu, í vestur- átt blunda skógar í blárri móðu. En innan girðinganna er aðeins eitt tré, bolmikil, hávaxin eik í laufi. Mér varð starsýnt á þetta tré sem stóð þarna svo hnarreist og einbúalegt. Þetta tré ber nafn Goethes — Goethe- eikin heitir það. Hingað gekk skáld- ið þegar það vildi fara eitt saman og flýja gæsagarg og hænsnahljóð hirð- arinnar í Weimar. Hér sat hann og horfði stórum alsjáandi augum yfir skóginn í vestri. Og að þessu tré drógust fangarnir í Buchenwald, menn frá öllum þjóðum Evrópu, og seildust til að hvíslast á undir þess- um hlyn, sem var þögult vitni að vansæmd Þýzkalands, að niðurlæg- ingu mannsins. Þúsundir dæmdra manna gengu þreyttum fótum fram hjá þessu tré, mörgum sendi það seinustu kveðju og hinztu huggun, öðrum veitti það endurborna trú á lífið og þrek til að þola þjáning, sem flestum má virðast ofurefli. Engum nema nazistum er gefin sú tegund gamansemi að reisa tugþúsundum manna píningarstað utan um eik Goethes. En þeir gáðu þess ekki, að hið aldna tré varð píslarvottunum tákn mannlyndis og mannhelgi, tákn þess Þýzkalands, er mannkynið allt telur sér til sameignar. Á ferð um Austur-Þýzkaland Um það er leið að lokum Heine- ráðstefnunnar var mér sagt að ég mundi eiga kost á að ferðast um Þýzka alþýðulýðveldið um rúmlega tíu daga skeið, ef ég vildi þiggja. Ég gat ekki staðizt svo gott boð. Mér lék bugur á að kynnast yfirbragði þess vestlægasta lands, er lifir við sósíalíska þjóðfélagshætti í Evrópu. Ég hafði lesið margt um þetta land í vestrænum blöðum, og fátt gott, er- lendir blaðamenn höfðu fjargviðrazt mjög um það, hve allt væri þar rytj- ungslegt, fólkið tötralega klætt, búð- irnar snauðar — það væri þá ein- hver munur á „efnahagskraftaverk- inu“ í Vestur-Þýzkalandi! Eg hafði hálft í hvoru trúað þessu, ég kannað- ist við marga þessara blaðamanna frá fornu fari, hafði reynt þá glögga athugendur í mörgum greinum og bjóst við að þeir mundu ekki halla réttu máli um skör fram. Þegar ég hóf ferð mína um Austur-Þýzkaland þá fór því fjarri, að ég hafi gert mér sérlega bjartar vonir um það sem ég mundi sjá eða heyra. Hinn 14. október sleppti Heine- nefndin af mér hendinni, en við mér tók félag eitt, er sér um menningar- tengsl þýzka alþýðulýðveldisins við útlönd — Gesellschajt jiir kulturelle 141
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.